Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Amaroq leiddi hækkanir í Kaup­höllinni

Read Full Article →

Hluta­bréfa­verð Amaroq hækkaði um rúm 8% í 194 milljóna króna við­skiptum í dag og stóð gengið í 174 krónum á hlut við lokun markaða. Hækkun Amaroq kemur á sama tíma og alþjóð­legir hluta­bréfa­markaðir tóku við sér vegna væntinga um minni spennu fyrir botni Persaflóa og mögu­lega opnun Hormussunds Olíu­verð lækkaði skarpt í dag, en Brent-hráolía féll um meira en 7 pró­sent og var í kringum 101 dali við lokun markaða. Gull­verð hækkaði einnig í dag og fór upp um tæp þrjú pró­sent. Það skiptir máli fyrir Amaroq, enda hefur gengi félagsins á ís­lenska markaðnum oft hreyfst í takti við væntingar á gull­markaði. Icelandair hækkaði næst­mest í dag, eða um tæp 5%, og stóð gengi félagsins í 0,804 krónum við lokun. Hækkun flug­félagsins rímar við hreyfingar á alþjóðamörkuðum þar sem lækkun olíu­verðs studdi við ferða- og flug­félög, enda er elds­neytis­kostnaður einn stærsti kostnaðar­liður flug­félaga. Sýn hækkaði einnig um tæp 5% og stóð í 112 krónum á hlut. Brim hækkaði um rúm 2% í 85,25 krónur og Ís­félagið hækkaði um rúmt 1% í 151 krónu. Arion banki hækkaði um rúmt 1% í 198,5 krónur í 642 milljóna króna veltu. Bréf bankans voru meðal veltu­mestu bréfa dagsins, en Arion birti í dag upp­gjör fyrir fyrsta árs­fjórðung þar sem fram kom að hagnaður bankans nam 7,3 milljörðum króna og arð­semi eigin fjár 13,9%. Úr­vals­vísi­talan OMXI15 hækkaði um rúmt 1% og stóð í 2.788,64 stigum við lokun markaða. Mest lækkaði gengi Skaga, eða um tæp 5%, og stóð í 17,9 krónum við lokun. Síminn lækkaði um tæp 2% í 12 krónur og Ocu­lis lækkaði um tæpt 1% í 3.500 krónur. Mest velta var með bréf Ís­lands­banka, eða 1,1 milljarður króna. Festi kom næst með 685 milljónir króna í veltu og Arion banki var í þriðja sæti með 642 milljónir króna. Heildar­velta með hluta­bréf í Kaup­höllinni nam 4,3 milljörðum króna í 402 við­skiptum. Sjá einnig Hluta­bréfa­verð Icelandair á upp­leið

Share this article