Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Amaroq síðast lægra í byrjun desember

Read Full Article →

Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,85% í 2,2 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Vaxtarfyrirtækin Alvotech og Amaroq lækkuðu mest eða um tæp 6%. Alvotech aldrei verið lægra Gengi Alvotech, sem birti ársuppjgör í gærkvöldi, lækkaði eða um 6% í 150 milljóna króna veltu og stendur nú í 440 krónum á hlut og er um 30% lægra en í upphafi árs. Dagslokagengi líftæknifyrirtækisins hefur aldrei verið lægra. Sjá einnig Hriktir enn veru­lega í tekju­stoðum Al­vot­ech Lækkað um 35% frá hæsta toppi Gengi Amaroq, sem heldur á víðtækum rannsóknar- og vinnsluheimildum í Grænlandi, lækkaði um rúm 5,9% í 44 milljóna króna veltu og stendur nú í 158 krónum á hlut. Hlutabréfaverð málmleitarfélagsins hefur nú lækkað um 35% frá því að það fór hæst upp í 244 krónur á hlut í lok janúar. Gengi Amaroq var síðast lægra í byrjun desember. Lækkun Amaroq í dag kann að skýrast af því að heimsmarkaðsverð gulls lækkaði um tæp 6% í dag og stendur í ríflega 4.600 dölum á únsu þegar fréttin er skrifuð. Alls lækkaði gengi ellefu félaga aðalmarkaðarins um 2% eða meira í viðskiptum dagsins. Á eftir Amaroq og Alvotech fylgdi Oculis sem lækkaði um 3,6. Gengi augnlyfjaþróunarfélagsins stendur nú í 3.200 krónum.

Share this article