Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Alvotech lækkar um 5% eftir uppgjör

Read Full Article →

Hlutabréfaverð Alvotech hefur lækkað um 7% í yfir hundrað milljóna króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Gengi líftæknifyrirtækisins stendur í 435 krónum á hlut þegar fréttin er skrifuð. Til samanburðar fór dagslokagengi félagsins lægst í 448 krónur á hlut á mánudaginn síðasta. Gengi Alvotech lækkaði talsvert við opnun markaða vestanhafs. Hlutabréfaverð Alvotech á Nasdaq-markaðnum í New York hefur lækkað um 4,7% og stendur í 3,62 dölum á hlut þegar fréttin er skrifuð. Sjá einnig Hriktir enn veru­lega í tekju­stoðum Al­vot­ech Alvotech birti ársuppgjör fyrir árið 2025 eftir lokun markaða í gær. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um lækkuðu tekjur félagsins af vöru- og þjónustusölur félagsins umtalsvert milli ára. Heildartekjur Alvotech á fjórða ársfjórðungi námu 173 milljónum dala sem er 13% aukning frá sama tímabili árið áður. Aðlöguð EBITDA nam 69 milljónum dala, samanborið við 21,7 milljónir dala á sama tímabili árið áður. Félagið hélt afkomuspá sinni fyrir árið 2026 óbreyttri. Væntar heildartekjur ársins 2026 eru á bilinu 650-700 milljónir og sem jafngildir vexti um tveggja stafa prósentu. Þá er gert ráð fyrir að aðlöguð EBITDA verði á bilinu 180-220 milljónir dollara. Sjá einnig Varfærin spá um sölu nýrra lyfja í Bandaríkjunum

Share this article