Hlutabréfaverð Alvotech hefur lækkað um 8,3% í viðskiptum dagsins og stendur nú í 397 krónum á hlut. Markaðsvirði líftæknifyrirtækisins stendur í tæplega 975 milljónum dala eða um 121 milljarði króna. Gengi Alvotech, sem er þrískráð á Íslandi, í Bandaríkjunum og Svíþjóð, lækkaði talsvert eftir opnun bandaríska markaðarins í dag. Alls hefur hlutabréfaverð Alvotech nú lækkað um 37% í ár og hefur aldrei verið lægra frá skráningu árið 2022. Sjá einnig Hriktir enn verulega í tekjustoðum Alvotech Alvotech birti ársuppgjör fyrir árið 2025 á miðvikudaginn síðasta. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um lækkuðu tekjur félagsins af vöru- og þjónustusölur félagsins umtalsvert milli ára. Í kjölfar uppgjörsins lækkaði fjárfestingarbankinn Barclays verðmatið sitt á Alvotech úr 5 í 4 dali á hlut, eins og Innherji greindi frá í dag. Róbert Wessman, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech, verður í ítarlegu viðtali í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun.