Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Alvotech undir 500 krónur í fyrsta sinn

Read Full Article →

Hlutabréfaverð Alvotech lækkaði um 3,9% í ríflega hundrað milljóna króna viðskiptum í dag og stendur nú í 494 krónum á hlut. Gengi félagsins hefur lækkað um 71% síðastliðið ár og hefur aldrei verið lægra. Sem þekkt er tók gengi Alvotech dýfu í byrjun nóvember þegar félagið tilkynnti um að það hefði móttekið svarbréf frá FDA um að eftirlitið myndi ekki afgreiða umsókn þess um markaðsleyfi fyrir AVT005, í áfylltri sprautu og lyfjapenna, sem er fyrirhuguð hliðstæða við líftæknilyfið Simponi, að svo stöddu. Samhliða færði félagið niður afkomuspá ársins 2025. Sjá einnig Varfærin spá um sölu nýrra lyfja í Bandaríkjunum Um miðjan desember síðastliðinn lauk Alvotech sölu á breytanlegum skuldabréfum að fjárhæð 108 milljónir dala, eða um 13,7 milljarðar króna. Þann 11. febrúar sl. tilkynnti félagið að það hefði ákveðið að gefa út 12,5 milljónir nýja hluti í félaginu, sem samsvarar 3,6% af fjölda útistandandi fjölda hluta í dag, í tengslum við umrædda fjármögnun. Skömmu áður hafði félagið tilkynnt um að það myndi nýta sér nýja veltufjármögnun upp á 100 milljónir dala. Alvotech mun birta ársuppgjör eftir lokun markaða 18. mars næstkomandi. Skagi, móðurfélag VÍS og Fossa fjárfestingarbanka, lækkaði næst mest af félögum aðalmarkaðarins eða um 3,7% í hundrað milljóna króna veltu og stendur gengi félagsins nú í 18,3 krónum á hlut. Lækkunin fylgir í kjölfar þess að samrunaviðræðum Skaga og Íslandsbanka var slitið um helgina eftir að Íslandsbanki fór fram á „verulegar breytingar“ á gagngjaldi í viðskiptunum. Sjá einnig Sam­runa­viðræðum Ís­lands­banka og Skaga slitið Gengi Íslandsbanka lækkaði lítillega eða um 0,4% í yfir 600 milljóna króna veltu og stendur nú í 139,5 krónum á hlut. Hlutabréf Eimskips hækkuðu langt mest eða um 4% í 67 milljóna króna veltu og hafa nú hækkað um 15% í verði á síðustu tveimur viðskiptadögum í Kauphöllinni. Gengi Eimskips stendur nú í 256 krónum. Hækkunina má líklega rekja til fregna um að Norðurál gerir nú ráð fyrir að framleiðsla á Grundartanga nái fullum afköstum í lok júlí, mun fyrr en áður var áætlað. Sjá einnig Gengi Eim­skips rýkur upp eftir fregnir af Grundar­tanga

Share this article