Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Alvotech hækkaði um 13% eftir lok úttektar

Read Full Article →

Hlutabréfaverð Alvotech hækkaði um 13,4% í ríflega 200 milljóna króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag og stendur nú í 440 krónum á hlut. Líftæknilyfjafyrirtækið upplýsti í morgun um Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefði lokið reglubundinni úttekt á framleiðsluaðstöðu félagsins í Reykjavík á föstudaginn. Alvotech segist gera ráð fyrir að FDA muni samþykkja umsóknirnar um markaðsleyfi á þessu ári. Sjá einnig Segja at­huga­semdir FDA ekki krefjast veiga­mikilla breytinga Félagið segist gera ráð fyrir að það krefjist ekki veigamikilla breytinga eða viðbragða til að bregðast skjótt við öllum athugasemdum eftirlitsins. Gengi Alvotech er enn um 29% lægra en í upphafi árs. Hlutabréfabréfaverð félagsins lækkaði talsvert í síðustu viku eftir að það birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung. Augnlyfjaþróunarfélagið Oculis hækkaði einnig um 3% í yfir hálfs milljarðs króna veltu og fór í fyrsta sinn yfir 4.000 krónur á hlut. Gengið félagsins, sem er nú metið á yfir 230 milljarða króna, stóð í 4.080 krónum við lokun Kauphallarinnar. Þá hækkaði hlutabréfaverð Heima fasteignafélags um 3,6% í 133 milljóna króna veltu og stendur það nú í 35,6 krónum á hlut. Fasteignafélagið birtir uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung eftir lokun Kauphallarinnar á morgun. Icelandair lækkaði mest af félögum Kauphallarinnar í dag eða um 2,1% í 20 milljóna króna veltu í dag. Gengi hlutabréfa flugfélagsins stendur nú í 0,772 krónum á hlut og er um 12,9% lægra en í upphafi árs. Lækkun á gengi Icelandair í dag gæti skýrst af því að heimsmarkaðsverð olíu hefur hækkað um 2-3% í dag.

Share this article