Hlutabréfaverð Alvotech lækkaði um rúm 9% í viðskiptum dagsins og lokaði í 410 krónum á hlut. Velta með bréf félagsins nam 84 milljónum króna. Lækkunin kemur eftir snarpa hækkun í byrjun vikunnar en á mánudaginn hækkaði gengi Alvotech um 13,4% í ríflega 200 milljóna króna veltu og stóð þá í 440 krónum á hlut. Fyrir opnun markaða á mánudaginn greindi Alvotech frá því að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, FDA, hefði lokið reglubundinni úttekt á framleiðsluaðstöðu félagsins í Reykjavík. FDA hóf úttektina í lok apríl og lauk henni á föstudaginn. Alvotech sagði í kjölfarið að félagið gerði ráð fyrir að bregðast skjótt við öllum athugasemdum eftirlitsins og að þær krefðust ekki veigamikilla breytinga eða viðbragða. Þá sagði félagið að niðurstaða úttektarinnar gerði því kleift að senda aftur inn umsóknir um markaðsleyfi í Bandaríkjunum þegar öll nauðsynleg gögn lægju fyrir. Sjá einnig Alvotech hækkaði um 13% eftir lok úttektar Alvotech hefur sagt að það geri ráð fyrir að senda umsóknirnar inn á öðrum ársfjórðungi og að FDA samþykki umsóknir um markaðsleyfi á þessu ári. Félagið vonast til þess að fjórar umsóknir um markaðsleyfi verði samþykktar af FDA í ár. Þrátt fyrir hækkunina á mánudaginn hefur gengi Alvotech verið undir þrýstingi. Bréfin hafa lækkað um rúm 9% síðasta mánuðinn, um 35% frá áramótum og tæp 69% á síðustu tólf mánuðum, samkvæmt markaðsgögnum í lok dags. Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,54% í dag og stóð í 2.796,13 stigum við lokun. Mesta hækkun dagsins var hjá Símanum, sem hækkaði um rúm 4% og stóð í 12 krónum á hlut. Amaroq lækkaði um 4,6% í 164 krónur á hlut. Icelandair lækkaði um tæp 3% og Hampiðjan um rúmt 1%. Mest velta var með bréf Íslandsbanka, eða 460 milljónir króna. Þar á eftir komu Síminn með 211 milljónir króna og Arion banki með 134 milljónir króna. Heildarvelta með hlutabréf í Kauphöllinni nam 1,3 milljörðum króna í 303 viðskiptum.