Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Alvotech og Oculis tekur stökk

Read Full Article →

Hlutabréfaverð Alvotech hækkaði um 9,2%, mest af félögum Kauphallarinnar, í yfir 300 milljóna króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Gengið stóð í 428 krónum við lokun íslenska markaðarins. Augnlyfjaþróunarfélagið Oculis fylgdi þar á eftir í 7,3% hækkun í yfir hundrað milljóna króna veltu og stendur gengi félagsins nú í 3.305 krónum á hlut. Sjá einnig Vendipunktur í vor Hækkun á gengi félaganna kann að skýrast að hluta af almennum hækkunum á bandaríska hlutabréfamarkaðnum í dag, en S&P 500 vísitalan hefur hækkað um 1,4% í dag. Þá var í dag greint frá því að líftæknifyrirtækið Biogen hefði samþykkt að kaupa líftæknifyrirtækið Apellis Pharmaceuticals fyrir 5,6 milljarða dala. Á föstudaginn var greint frá kaupum Novartis á líftæknifyrirtækinu Excellergy fyrir allt að 2 milljarða dala. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,6% í 3,3 milljarða króna veltu á aðalmarkaði Kauphallarinnar. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka og Arion banka. Gengi Íslandsbanka hækkaði um 1,5% og stendur nú í 135 krónum á hlut. Gengi Arion hækkaði um 1,2% og stendur nú í 176,5 krónum á hlut. Amaroq hækkaði næst mest á eftir Alvotech og Oculis. Gengi málmleitarfélagsins hækkaði um 2,2% í tæplega hundrað milljóna króna veltu og stendur í 163,5 krónum á hlut.

Share this article