Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengi Alvotech lækkar um rúm 3%

Read Full Article →

Hluta­bréfa­verð Al­vot­ech leiddi lækkanir í kaup­höllinni í dag er gengi félagsins fór niður um rúm 3% í 103 milljón króna við­skiptum í dag. Við­skipta­blaðið greindi frá því í dag að skort­stöður með bréf félagsins jukust í lok febrúar. Sam­kvæmt ný­birtum tölum Nas­daq sem miða við stöðuna 27. febrúar 2026 voru 2,96 milljónir hluta­bréfa að skort­seldar, saman­borið við 2,50 milljónir tveimur vikum fyrr, 13. febrúar. Skort­staðan jókst því um um 460 þúsund bréf, eða rúm 18% á milli mánaða. Sjá einnig Skort­staða eykst á ný í Al­vot­ech Dagsloka­gengi Al­vot­ech var 477 krónur á hlut en gengið hefur lækkað um rúm 24% það sem af er ári. Gengi JBT Marel lækkaði um 3,5% í lítill veltu og var dagsloka­gengið 17.550 krónur. Hluta­bréfa­verð málm­leitarfélagsins Amaroq minerals lækkaði um 3% í við­skiptum dagsins. Dagsloka­gengi Amaroq var 175 krónur en gengi félagsins hefur lækkað um 15% síðastliðinn mánuð. Þá lækkaði gengi Icelandair um 1,5% í 150 milljón króna við­skiptum en hluta­bréfa­verð félagsins rauk upp um 12% í gær. Hægt er að lesa um­fjöllun Við­skipta­blaðsins um áhrif hækkandi olíu­verðs á Icelandair hér. Úr­vals­vísi­talan lækkaði um 0,37% og var heildar­velta á markaði 3,5 milljarðar.

Share this article