Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hluta­fjáraukning vegna ÍV-kaupa samþykkt

Read Full Article →

Aðal­fundur Skaga samþykkti í gær að veita stjórn félagsins heimild til að hækka hluta­fé um allt að 24.231.800 hluti vegna upp­gjörs á kauprétti að 14,1% hlut í Ís­lenskum verðbréfum. Heimildin er liður í því að ljúka kaupum Skaga á eftir­standandi minni­hluta í félaginu og gera eignastýringuna að fullu að hluta af sam­stæðunni. Skömmu eftir aðal­fundinn til­kynnti Skagi síðan að stjórnin hefði ákveðið að nýta þessa heimild og hækka hluta­fé félagsins um 24.231.800 hluti í þeim til­gangi að greiða kaup­verð fyrir hlutinn. Eftir hækkunina verður hluta­fé Skaga 1.940.311.770 krónur að nafn­verði. Sjá einnig Stjórn­endur ÍV fá 500 milljóna hlut við sölu til Skaga Nýju hlutirnir verða teknir til við­skipta á aðal­markaði Nas­daq Iceland að lokinni skráningu. Í ávarpi sínu á fundinum sagði Stefán Héðinn Stefáns­son, stjórnar­for­maður Skaga, að upp­bygging eignastýringar innan sam­stæðunnar hefði gengið afar vel og að ákveðið hefði verið að nýta kaupréttinn í upp­hafi árs meðal annars með hlið­sjón af langtíma­hags­munum Skaga. Hann sagði að með því færi eignastýringin nú að fullu í eigu félagsins. Sjá einnig „Raunvirði félagsins nær 47 milljörðum“ Aðal­fundurinn samþykkti jafn­framt að greiða arð vegna rekstrarársins 2025 sem nemur 0,3988 krónum á hlut, eða sam­tals um 760 milljónum króna að teknu til­liti til eigin bréfa. Arð­leysis­dagur er í dag og út­borgunar­dagur 1. apríl. Þá samþykktu hlut­hafar að veita stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluta­bréf næstu 18 mánuði, eða til og með 17. septem­ber 2027, þannig að félagið og dóttur­félög þess geti átt allt að 10% af hluta­fé félagsins. Heimildina má meðal annars nýta til að koma á við­skipta­vakt, setja upp form­lega endur­kaupaáætlun eða gera hlut­höfum al­mennt til­boð um kaup á eigin bréfum. Stjórn félagsins var sjálf­kjörin á fundinum. Í aðal­stjórn voru kjörin Ás­geir Helgi Reyk­fjörð Gylfa­son, Hrund Ru­dolfs­dóttir, Marta Guðrún Blön­dal, Stefán Héðinn Stefáns­son og Vil­hjálmur Egils­son. Stefán verður áfram stjórnar­for­maður og Vil­hjálmur vara­for­maður. KPMG var sömu­leiðis kjörið endur­skoðunarfélag Skaga.

Share this article