Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Advise lýkur 166 milljóna króna hlutafjáraukningu

Read Full Article →

Advise hefur lokið 166 milljóna króna hlutafjáraukningu til að styðja við innreið félagsins á Norðurlandamarkað. Fjármögnunin er hluti af um 400 milljóna króna fjármögnun félagsins á síðustu tveimur árum og var studd af núverandi hluthöfum. Fjárfestingin er leidd af Skyggni eignarhaldsfélagi, sem eykur við hlut sinn í félaginu í hlutafjáraukningunni. Samhliða tekur Ari Daníelsson, forstjóri Skyggnis, við sem stjórnarformaður Advise. Fyrirtækið mun á næstu vikum opna starfsstöð í Stokkhólmi og hefja sókn á markað sem er um 50 sinnum stærri en sá íslenski. Lausn félagsins, sem nýtir viðskipta- og gervigreind til að greina fjármál og styðja stjórnendur við ákvarðanatöku, hefur verið undirbúin fyrir skölun og tengist nú helstu bókhaldskerfum á Norðurlöndum. Sjá einnig Myndir: Morgun­verðar­fundur Advise „Við höfum byggt upp sterka stöðu á Íslandi á skömmum tíma og sjáum skýr tækifæri til vaxtar á Norðurlöndum þar sem áskoranir stjórnenda eru í grunninn þær sömu og á Íslandi. Við erum vel undirbúin og spennt að hefja næsta kafla félagsins,“ segir Mikael Arnarson, framkvæmdastjóri Advise. Yfir þúsund íslenskir stjórnendur nýta lausn Advise í dag, þar á meðal um 10% allra fyrirtækja með fleiri en 10 starfsmenn, en lausnin er samhæfð öllum helstu bókhaldskerfum á Íslandi, þar á meðal DK, Reglu, Payday og Microsoft Business Central. „Við hjá Skyggni höfum mikla trú á lausn Advise og teljum hana eiga skýrt erindi á alþjóðlega markaði. Félagið hefur þegar sannað sig á íslenskum markaði og byggt upp öflugt teymi með metnað til frekari vaxtar. Með aukinni fjárfestingu erum við að undirstrika þá trú í verki. Ég hlakka til að leiða stjórn félagsins og vinna náið með stjórnendum að því að móta stefnu og hraða vexti Advise,“ segir Ari Daníelsson, forstjóri Skyggnis og stjórnarformaður Advise.

Share this article