Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Norðursiglingar bregst við sekt Neytendastofu

Read Full Article →

Norðursiglingar ehf. hefur sent frá sér tilkynningu þar sem félagið segist vilja koma nokkrum punktum á framfæri í tengslum við niðurstöðu Neytendastofu fyrr í dag þar sem hvalaskoðunarfyrirtækið var sektað um 1,5 milljón króna. Greint var frá því fyrr í dag að Neytendastofa hefði sektað Norðursiglingar vegna villandi markaðssetningar þar sem fyrirtækið mun hafa gefið í skyn að ferðir á þeirra vegum væru umhverfisvænni en raun bar vitni. Gentle Giants - Hvalaferðir, samkeppnisaðili Norðursiglinga á Húsavík, hafði upprunalega sent inn kvörtun árið 2024 og birtist úrskurðurinn í málinu fyrr í dag á síðu Neytendastofu. Sjá einnig Kvörtun um grænþvott leiddi til 1,5 milljóna sektar Norðursiglingar segir að frá stofnun félagsins árið 1995 hafi fyrirtækið verið leiðandi í þróun sjálfbærrar ferðaþjónustu á Íslandi. „Fyrirtækið hefur ætíð lagt áherslu á að lágmarka umhverfisspor sitt og verið í fararbroddi við að innleiða grænar lausnir í hvalaskoðun. Þessi vegferð hefur í gegnum árin skilað félaginu íslenskum sem alþjóðlegum viðurkenningum fyrir framlag sitt til náttúruverndar og sjálfbærrar nýtingar auðlinda.“ Í tilkynningu segist félagið einnig endurgera og reka flota uppgerðra eikarbáta og skúta og með því að gefa þeim skipum nýtt líf sé félagið að varðveita mikilvægan menningararf íslenskrar sjómennsku. Norðursigling bætir við að það hafi lagt mikið upp úr tækninýjungum, þar á meðal rafvæðingu skipa, til að geta boðið upp á hljóðláta og kolefnislausa upplifun þar sem því verður við komið. „Neytendastofa hefur gert athugasemdir við hversu víðtækar fullyrðingar félagsins hafa verið í markaðssetningu með tilliti til alls flotans. Norðursigling mun fara yfir og uppfæra kynningarefni sitt í samræmi við ákvörðunina til að tryggja að neytendur fái sem skýrastar upplýsingar um eiginleika hvers skips fyrir sig.“ Þorsteinn Jóhannesson hjá Norðursiglingu segir að félagið hafi alltaf lagt hjarta í að starfa í sátt við náttúruna. „Þótt við þurfum að skerpa á orðalagi í okkar markaðsefni breytir það ekki þeirri staðreynd að Norðursigling er og verður leiðandi fyrirtæki í umhverfisvænni ferðaþjónustu. Við höldum ótrauð áfram okkar vegferð við að bæta nýtingu hreinna orkugjafa og varðveita okkar dýrmætu eikarbáta.“

Share this article