Innlent | mbl | 17.4.2026 | 13:46 Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Neytendastofa hefur til meðferðar kvartanir vegna framsetningu fasteignaauglýsingar. Samsett mynd/mbl.is/Árni Sæberg/Mbl.is/Eggert/Skjáskot Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Neytendasamtökin hafa sent kvörtun til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsingar á Vísi er varða nýjar íbúðir í Valshlíð í svokölluðu Valshverfi í Reykjavík. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir samtökin telja að um villandi framsetningu sé að ræða. Ómar Hjaltason fasteignasali hjá fasteignasölunni Pálsson segir fasteignasöluna líta svo á að ekkert sé villandi við framsetninguna. Um er að ræða fjölmargar auglýsingar á eignum í Valshlíð þar sem upp er gefið heildarverð og fermetraverð íbúða. Eins og kaupandi fái 100% eignarhlutdeild Í auglýsingunni má leiða líkum að því að verðið miðist við að um 75% hlutdeildarkaup sé að ræða, þannig að verktaki heldur eftir 25% af eignarhaldinu. Af tölum í auglýsingunni að dæma er fermetraverðið hins vegar auglýst eins og kaupandi sé að fá 100% eignarhald. Til dæmis er 78,8 fermetra íbúðin í meðfylgjandi dæmi auglýst á rúmar 60,6 milljónir króna, með uppgefnu fermetraverði 769.987 krónur. Skjáskot úr fasteignaauglýsingu. Skjáskot Í reynd er kaupandinn þó aðeins að kaupa 75% hlut, eða 59,1 fermetra. Miðað við það nemur raunverulegt fermetraverð rúmlega 1.027.000 krónum. Það jafngildir því að heildarverð íbúðarinnar sé um 80 milljónir króna, þótt hún sé auglýst á 60,6 milljónir fyrir 75% hlut. Þannig að ef auglýst fermetraverð er lagt á þann hluta sem kaupandinn fær í raun, 59,1 fermetra, ætti verðið að nema um 45,5 milljónum króna. Kaupverðið er hins vegar 60,6 milljónir króna, sem undirstrikar muninn á framsetningunni og raunverulegum kostnaði. Valshlíð Auglýst framsetning Raunveruleg staða (75% kaup) Stærð íbúðar 78,8 m² 59,1 m² (75% hlutur) Kaupverð 60,6 m.kr. 60,6 m.kr. Fermetraverð 769.987 kr./m² 1.027.000 kr./m² Heildarverð íbúðar Ekki skýrt tekið fram ~80 m.kr. (100% virði) Taflan sýnir muninn á auglýstri framsetningu og raunverulegum kostnaði þegar miðað er við þann eignarhlut sem kaupandi fær. „Klárlega villandi“ Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að samtökin telji augljóslega um villandi framsetningu að ræða. „Þetta er klárlega villandi auglýsing og þess vegna sendum við þetta beint á Neytendastofu. Við fengum upplýsingar þaðan um að þegar væri hafin skoðun á málinu,“ segir Breki. Fullt heildarverð á annarri síðu Hlíðarhorn er íbúðaverkefnið sem stendur að baki íbúðum sem reistar hafa verið í Valshlíð. S8 er aftur fyrirtækið sem þróar og býður leiðir fyrir kaupendur að eignast hlut í íbúðinni. Íbúðirnar í Valshlíð eru einnig í auglýsingu á fasteignavef mbl.is. Þar er Hlíðarhorn kynnt sem seljandi og fram kemur fullt heildarverð fasteignar. Einnig er minnst á möguleika á því að kaupandi eignist 75% hlut í fasteigninni. Þá eru íbúðir í Valshlíð einnig auglýstar af öðrum fasteignasölum á Vísi þar sem heildarverðið er sýnt. Frétt af mbl.is „Við erum ekki hefðbundnir verktakar – við gerum þetta sjálf“ „Ekkert villandi við framsetninguna“ Á fasteignavef Vísis stendur hins vegar að fasteignasalinn Pálsson standi að hinni meintu Ómar Hjaltason hjá fasteignasölunni Pálsson. Ljósmynd/Pálsson villandi framsetningu. Ómar Hjaltason fasteignasali hjá Pálsson segir að það sé mat fasteignasölunnar að framsetning sé ekki villandi. „ Að okkar mati er í raun ekkert villandi við framsetninguna á auglýsingunum þar sem kemur skýrt fram að við séum að auglýsa til sölu 75% eignarhlut,“ segir Ómar í skriflegu svari til mbl.is „Við teljum framtak S8 í þessu vera til fyrirmyndar, þau eru að leggja sitt af mörkum til að koma kaupendum inn á markaðinn. Þeir kaupendur sem hafa nýtt sér þessa leið komast því í glæsilega nýja íbúð,“ segir Ómar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Spánverjarnir spenntastir fyrir Klopp Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Fallinn varaformaður og vaxtaokur í boði hins opinbera Beint: Allir oddvitar mætast hjá FEB Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Málið komið fram á fölskum forsendum Lýsa yfir furðu og vonbrigðum Ísafjarðarflug tryggt til næstu fjögurra ára Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Spánverjarnir spenntastir fyrir Klopp Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Hormússund opið og tilbúið fyrir „fulla umferð“ Fallinn varaformaður og vaxtaokur í boði hins opinbera Beint: Allir oddvitar mætast hjá FEB Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Málið komið fram á fölskum forsendum Veruleg skerðing á bílastæðum Mest lesið Í gær Í vikunni Auddi og Rakel opna dyrnar Guðmundur Ingi færir sig um set Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Sjálfstæðisflokkurinn leigir af Sjóvá Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá