Innlent | mbl | 17.4.2026 | 21:50 Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Páll Pálsson, eigandi fasteignasölunnar Pálsson. Samsett mynd/Pálsson/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Meirihluti landsmanna hlynntur leiguþaki Fagna því að eðlilegum hömlum verði komið á leiguverð Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Styrkir samtökin um 25 milljónir Íbúum fjölgaði mest í Reykjavík og Hafnarfirði » Fleiri tengdar fréttir Páll Pálsson, eigandi fasteignasölunnar Pálsson, ver gagnrýnda framsetningu á fasteignaauglýsingum fyrirtækisins sem komin er á borð til Neytendastofu vegna ásakana um villandi upplýsingagjöf. Málið snýr að íbúðum í Valshlíð í Hlíðahverfi þar sem íbúðarverð er birt lægra en heildarverð eignanna. Í einu dæmi er íbúð sem kostar yfir 80 milljónir króna auglýst á um 60 milljónir, þar sem miðað er við sölu á 75% eignarhlut. Þá er fermetraverð jafnframt birt 25% lægra en raunverulegt verð gefur til kynna. Meðvituð framsetning Páll segir framsetninguna meðvitaða og ætlaða til að draga fram ákveðið kaupform. „Staðreyndin er sú að við erum að selja 75% af eigninni á þessu verði og seljandi heldur eftir 25%,“ segir hann. Hann bætir við að fyrirtækið telji framsetninguna réttmæta: „Það má færa rök fyrir því að við séum að gera þetta rétt, því við erum í raun að selja þetta á tilteknu verði miðað við 75% eignarhlut.“ Frétt af mbl.is Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Verð í fasteignaauglýsing hefur orkað tvímælis. Heildarverð á þessari eign er rúmar 80 milljónir króna. Skjáskot Reiknað með að fólk hringi Gagnrýni hefur þó beinst að því að kaupendur fái ekki skýra mynd af heildarverði nema með frekari eftirgrennslan. Páll viðurkennir að málið hafi verið til umræðu. „Það hafa verið virkar umræður um framsetninguna, bæði hjá okkur og hjá verktakanum,“ segir hann. Þrátt fyrir það var ákveðið að halda birtingunni óbreyttri. „Á endanum litum við svo á að fólk myndi bara hringja og þá myndum við útskýra betur fyrir því hvernig svona samningur lítur út,“ segir Páll. Kerfið ræður fermetraverði Hann segir birtingu fermetraverðs ráðast af tæknilegum takmörkunum í tölvukerfi fasteignavefsins. „Því miður býður kerfið ekki upp á annað og þetta hefur verið skýrt fyrir þeim sem hafa haft samband,“ segir hann. Aðrar fasteignasölur sem bjóða sams konar hlutdeildarkaup á sama svæði hafa hins vegar farið aðra leið og birta heildarverð eignanna. „Þetta er bara ólík kynning á sama hlut,“ segir Páll. Hann segist þó skilja að framsetningin geti vakið spurningar en bætir við: „En ég veit svo sem ekki hvort það sé heiðarlegra að setja fram fullt verð á íbúðinni þegar fólk er að eignast 75% hlut,“ segir Páll Leiga og kaupréttur Þegar fólk kaupir 75% hlut í íbúð greiðir það leigu af hinum 25%, en fær síðan tækifæri til að kaupa þann eignarhlut innan þriggja ára á sama verði og upphaflega var samið um. Í þeim tilvikum gengur leiguupphæðin upp í greiðslu fyrir 25% hlutinn, að sögn Páls. Ef fólk getur ekki keypt 25% hlutinn að þremur árum liðnum er gerður nýr leigusamningur miðað við markaðsleigu á þeim tíma. „Við erum bara að reyna að hjálpa fólki að komast inn á markaðinn með þessum hætti,“ segir Páll. Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Meirihluti landsmanna hlynntur leiguþaki Fagna því að eðlilegum hömlum verði komið á leiguverð Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Styrkir samtökin um 25 milljónir Íbúum fjölgaði mest í Reykjavík og Hafnarfirði » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ægileg dramatík og læti útaf engu Stungin 40 sinnum fyrir að neita stefnumóti Hvers vegna hætta íslenskar konur með mönnunum sínum? Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Eminem afi í annað sinn Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ Olíuverð hríðfellur „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Málið komið fram á fölskum forsendum Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Meirihlutinn fallinn Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » Ægileg dramatík og læti útaf engu Stungin 40 sinnum fyrir að neita stefnumóti Hvers vegna hætta íslenskar konur með mönnunum sínum? Ver framsetninguna: „Erum að selja 75% af eigninni“ Eminem afi í annað sinn Umræðan Niðurgreiðum ekki okurleigu Ýktar sögur af andláti Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vill snúa við „óheillaþróun“ á námsárangri barna Lyfjastofnun: „Þetta er vaxandi vandamál“ Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Mest lesið Í gær Í vikunni Guðmundur Ingi færir sig um set Auddi og Rakel opna dyrnar Agabrot flugstjórans ólíðandi Lögreglan oft kölluð að kaffistofu Kvartað til Neytendastofu vegna fasteignaauglýsinga Vildi ekki hitta þingmennina „Þetta er bara bílskúrsmeðferð“ Meirihlutinn fallinn Afstaða ESB: Enginn vafi um aðlögun Andlát: Gunnsteinn Rúnar Gíslason Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Íslenskir píparar tapa fyrir pólskum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá