Innlent | mbl | 20.4.2026 | 15:03 500 milljónir í hleðsluinnviði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið fer fyrir framkvæmd fjórþætts átaksverkefnis til uppsetningar hleðsluinnviða fyrir rafbíla. Kostnaðurinn nemur 500 milljónum króna. Það er gert í ljósi hækkandi heimsmarkaðsverðs á olíu og óstöðugleika á eldsneytismörkuðum að því er segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Greint var frá aðgerðinni á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar fyrir rúmri viku. Fylla í götin Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að markmið verkefnisins sé að gera sem flestum kleift að slíta sig frá eldsneytisdælunni á tímum hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og nýta þess í stað hreina, íslenska og ódýra orku. Gert er ráð fyrir að umfang verkefnisins nemi 500 milljónum króna, þar af koma 300 milljónir af þegar veittum fjárheimildum vegna orkumála. Eins og áður segir eru aðgerðirnar fjórþættar: Stutt verður við uppbyggingu hleðslustöðva í fjöleignarhúsum, til að stuðla að jafnara aðgengi að hleðsluinnviðum óháð því hvort fólk býr í fjölbýlishúsi, raðhúsi eða einbýlishúsi. Verður einkum horft til húsa sem voru byggð áður en skylt varð samkvæmt byggingarreglugerð að gera ráð fyrir hleðslustöðvum við nýbyggingar. Fyllt verður skipulega í götin á hraðhleðslunetinu hringinn í kringum landið. Þótt hraðhleðslunet þjóðvega sé nú þegar þéttriðið eru enn svæði þar sem langt er á milli hleðslustöðva. Markmið aðgerðarinnar er að í lok ársins 2026 verði hvergi meira en 100 km á milli hraðhleðslustöðva á þjóðvegakerfinu og að hraðhleðslustöð sé að finna í hverjum þéttbýlisstað á landinu. Stutt verður við uppbyggingu hleðslustöðva við gististaði. Þar sem bílaleigubílar eru stór hluti bílaflotans á Íslandi er lykilatriði að rafvæðingu bílaleiguflotans verði hraðað og að ferðamenn velji rafbíla í auknum mæli, frekar en bíla sem knúnir eru jarðefnaeldsneyti. Þéttriðnara hleðslunet og tryggari hleðsluaðstaða við gististaði getur stuðlað að þessu. Hafin verður vinna við að tryggja samræmdara og einfaldara greiðslufyrirkomulag vegna hleðslu rafbíla þannig að auðvelt sé að greiða með greiðslukorti í stað ólíkra snjallforrita. Markmiðið er að draga úr flækjustigi, bæta notendaupplifun og koma í veg fyrir að fólk, sérstaklega ferðafólk, mikli fyrir sér slíkar hindranir við val á ökutækjum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Viktor Bjarki: Ótrúlega þýðingarmikið fyrir mig Jóhann Páll snýr aftur úr fæðingarorlofi 500 milljónir í hleðsluinnviði Vignir Vatnar Stefansson secures a spot at Chess World Cup Leikmenn Íslendingaliðsins rændir Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Þurfum að tuttugufalda hraða uppbyggingar hjúkrunarrýma Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðgerð í Kópavogi að ljúka 300 ferðir á spítalann Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Segjast ekki áforma friðarviðræður við Bandaríkin Mest lesið Í gær Í vikunni Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Óska eftir launalausum liðsauka Hitinn gæti náð 14 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Iðrast eftir óhöpp og slysfarir Skýringar á þýsku sturtunum með miklum ólíkindablæ Gæti tafist fram yfir kosningar Störfum fjölgar hjá hinu opinbera Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Kirkjan verður af háum fjárhæðum Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Kíkti í dagbækur vinkvennanna Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Nýjast á mbl.is » Viktor Bjarki: Ótrúlega þýðingarmikið fyrir mig Jóhann Páll snýr aftur úr fæðingarorlofi 500 milljónir í hleðsluinnviði Vignir Vatnar Stefansson secures a spot at Chess World Cup Leikmenn Íslendingaliðsins rændir Umræðan Einföld borg er ódýrari fyrir þig Þurfum að tuttugufalda hraða uppbyggingar hjúkrunarrýma Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Iðrast eftir óhöpp og slysfarir Segja Rússa hafa hótað Þýskalandi Gæti tafist fram yfir kosningar Sprengdu gat á flutningaskip og tóku stjórn á því Mest lesið Í gær Í vikunni Við stýrið undir fölsku flaggi Hreyfils Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Óska eftir launalausum liðsauka Hitinn gæti náð 14 stigum Lögmaður Helga Bjarts sendir frá sér yfirlýsingu Iðrast eftir óhöpp og slysfarir Skýringar á þýsku sturtunum með miklum ólíkindablæ Gæti tafist fram yfir kosningar Störfum fjölgar hjá hinu opinbera Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Fólk þurfi að vera hrætt Þórdís Lóa vill taka við starfi sveitarstjóra Kirkjan verður af háum fjárhæðum Pétur vill rauða dregilinn út Flugvél hvolfdi í lendingu Jón komst í gegn en Trump ekki „Vaða áfram eins og börn í frekjukasti“ „Maður á eiginlega ekki bíl eftir það“ Kíkti í dagbækur vinkvennanna Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá Höfuðkúpubrotinn eftir ákeyrslu Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi