Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Eyjólfur útdeilir 170 milljónum í 14 verkefni

  • What: Eyjólfur Ármannsson, the Minister of Infrastructure, has allocated 170 million króna in grants to fourteen projects aimed at strengthening vulnerable communities in Iceland.
  • Impact: The grants are intended to support regional development initiatives and empower local communities.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.2.2026 | 11:30 Eyjólfur útdeilir 170 milljónum í 14 verkefni Alls bárust 28 umsóknir fyrir um 756 milljónir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur úthlutað styrkjum að upphæð 170 milljónum króna til fjórtán verkefna til að efla viðkvæmar byggðir landsins. Framlag til styrkjanna kemur af byggðaáætlun (aðgerð C.1 – Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða) en alls bárust 28 umsóknir fyrir um 756 milljónir. Þetta er hæsta úthlutun úr þessari aðgerð á tímabili gildandi byggðaáætlunar, að því er fram kemur í tilkynningu á vef innviðaráðuneytisins . Þar segir jafnframt að markmiðið með aðgerðinni sé að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna. Landshlutasamtök sveitarfélaga geti sótt um framlög í samkeppnissjóð vegna verkefna sem nýtist einstökum svæðum eða byggðarlögum innan landshlutans eða landshlutanum í heild. Ákveðin verkefni í forgangi Verkefni sem talin séu hafa varanleg áhrif, séu atvinnuskapandi og hvetji til nýsköpunar séu í forgangi. Þá er sérstök áhersla lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf. Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og gerði tillögur til ráðherra. Skipun valnefndar og mat umsókna voru í samræmi við reglur um úthlutun ráðherra á framlögum sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar að sögn ráðuneytisins. Verkefnin sem hlutu styrk eru: Sjálfbær ferðaþjónusta í Dölum Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) Styrkupphæð: 9 m.kr. Verkefnið er þríþætt. Í fyrsta lagi er um að ræða markaðsherferð fyrir Dalina sem áfangastað sem standa mun yfir í eitt ár. Í öðru lagi verður unnið náið með ferðaþjónum í gegnum vinnustofur, hóphandleiðslu og einstaklingsráðgjöf til að aðstoða þá í markvissri markaðssetningu. Í þriðja lagi er um að ræða mótun staðbundinnar stefnu í ferðaþjónustu með hagaðilum, með áherslu á nærandi ferðaþjónustu. Búseta og samfélag í dreifbýli í sunnanverðum Snæfellsbæ Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) Styrkupphæð: 11,5 m.kr. Verkefnið felst í heildstæðri greiningu á forsendum búsetu og byggðafestu í dreifbýli í sunnanverðum Snæfellsbæ, skólahverfi Lýsuskóla. Unnin verður greining, sviðsmyndavinna og raunhæfar tillögur að leiðum til að efla íbúabyggð, fjölskyldubúsetu og samfélagsinnviði. Nytjajurtir til nýsköpunar Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV) Styrkupphæð: 9 m.kr. Markmiðið er að byggja upp sjálfbæra ræktun burnirótar og annarra heilsubótarplantna á Vestfjörðum. Burnirót er á verndarlista vegna ágengrar nýtingar og eingöngu er heimilt að selja unnar afurðir úr ræktun. Ræktun burnirótar skapar nýja verðmæta tegund landbúnaðar með betri landnotkun og styrkir byggðafestu til langtíma. Matarkista Breiðafjarðar. Matvælasetur í Króksfjarðarnesi Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV) Styrkupphæð: 20 m.kr. Verkefnið felst í uppbyggingu matvælaseturs á Króksfjarðarnesi í Reykhólahreppi til að styðja við matvælanýsköpun og atvinnuuppbyggingu með framleiðslu „Beint frá býli“. Setrið mun bjóða upp á vottaða framleiðsluaðstöðu, framleiðslutæki og vinnslurými fyrir bændur og frumkvöðla til þróunar og framleiðslu á frum- og lokaafurðum í atvinnuskyni, s.s. landbúnaðarafurðum og sjávarafurðum skelfisks, þangs og þara. Þróunarfélag Króksfjarðarness. Uppbygging atvinnu, þjónustu og íbúðarbyggðar á Króksfjarðarnesi Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV) Styrkupphæð: 11 m.kr. Verkefnið snýr að því að fjármagna þróunarfélag sem hefur það markmið aðmarkaðssetjaa Króksfjarðarnes sem ákjósanlegan fjárfestingarkost með samningum viðuppbyggingaraðilaa. Króksfjarðarnes er anddyri Vestfjarða og svæði með gífurleg tækifæri til framtíðaruppbyggingar. Í kringum Króksfjarðarnes er að finna ónýttan jarðvarma sem getur nýst tilmargs konarr atvinnustarfsemi íferðaþjónustuu, landbúnaði og eldi. Kuklið – þróun og efling frumkvöðlaseturs matvæla á Ströndum Styrkþegi: Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV) Styrkupphæð: 16 m.kr. Verkefnið felst í að efla og þróa frumkvöðlasetrið Kuklið á Ströndum á þriggja ára tímabili með ráðningu verkefnastjóra sem hefur það hlutverk að virkja og móta starfsemi setursins. Byggt er á innviðum sem hafa verið fjármagnaðir áður og lögð áhersla á að styðja við matvælafrumkvöðla, styrkja nýsköpunarumhverfi Stranda og skapa forsendur fyrirsjálfbærumnrekstrir til framtíðar. Lýsistankar á Raufarhöfn Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) Styrkupphæð: 8 m.kr. Framhaldsstyrkur til að ganga frá þaki og setja upp merkingar sem eru forsenda þess að tankarnir verði fullnægjandi, öruggir og tilbúnir fyrir notkun í menningar-, lista- og ferðaþjónustu. Ráðhúsið á Raufarhöfn – atvinnu- og samfélagssetur Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) Styrkupphæð: 10 m.kr. Framhaldsstyrkur til að skapa aðstöðu til fjölbreyttari atvinnustarfsemi á staðnum, laða að frumkvöðla og nema, efla menntunarstig þorpsins og styrkja stoðir þess sem fyrir er. Ætlunin e aðr ljúka þeim framkvæmdum sem eftir standa í atvinnu- og samfélagssetrinu. Vaxtarplan fyrir Norðausturhornið – innviðir og aukin verðmætasköpun Styrkþegi: Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) Styrkupphæð: 20 m.kr. Verkefnið styður við uppbyggingu á norðausturhorninu með því að greina helstu tækifæri, móta skýra framtíðarsýn fyrir innviðaþróun og aukna verðmætasköpun með nýjum atvinnutækifærum. Verkefnið fylgir eftir nýlegu samkomulagi sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra undirritaði við Landsnet og Rarik um aukna afhendingargetu og afhendingaröryggi raforku á svæðinu. Stöðvarrými – samvinnurými á Stöðvarfirði Styrkþegi: Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) Styrkupphæð: 15 m.kr. Markmiðið er að setja upp samvinnurými á Stöðvarfirði. Þar með fjölgar tækifærum til fjölbreyttrar atvinnustarfsemi á svæðinu, starfa án staðsetningar og eflingar menntastigs byggðanna með aðstöðu til fjarnáms. Á Stöðvarfirði er búið að teikna upp um 98 fermetrarýmii á neðri hæð í Sköpunarmiðstöðinni. Vetrarferðaþjónusta á Seyðisfirði Styrkþegi: Samband sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) Styrkupphæð: 13 m.kr. Markmiðið er að styrkja stoðir vetrarferðaþjónustu á Seyðisfirði með stofnun ferðaþjónustuklasa. Unnið með ferðaþjónustuaðilum að því að tryggja grundvöll ferðaþjónustu á svæðinu og gera hana að heilsársatvinnugrein. Horft sérstaklega til þess að tengja ferðaþjónustuna skíðasvæðinu í Stafdal, til fjölbreyttrar afþreyingar og veru auk fjölbreyttarinýtingarmöguleikai svæðisins og tengingu við nýjan hring Bjólfs. Söguslóðir Suðurlands Styrkþegi: Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) Styrkupphæð: 6,5 m.kr. Verkefnið felst í þróun heildstæðrar sögutengdrar ferðaleiðar til að styrkja atvinnulíf í dreifðum byggðum með því að lengja dvöl gesta, fækka dagsferðum og auka staðbundna verðmætasköpun. Leiðin verður sett fram á vef og stafrænu korti og byggir á kortlagningu og varðveislu sagna og söguslóða sem nýtast til langs tíma í þróun ferðaþjónustu og atvinnuuppbyggingar í heimabyggð. Eldfjallaleiðin – markaðssetning og miðlun Styrkþegi: Samtök sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) Styrkupphæð: 4,5 m.kr. Eldfjallaleiðin er samstarfsverkefni Markaðsstofu Reykjaness og Markaðsstofu Suðurlands sem miðar að því að miðla þekkingu um eldvirkni, áhrif hennar á náttúru og samfélög og skapa virðisaukandi tækifæri í ferðaþjónustu. Ferðaleiðin var þróuð af íbúum ogferðaþjónustuaðilumm. Styrkur verður nýttur til að fjármagna markaðssetningu, samræmda framsetningu og þróun verkfæra sem styðja ferðaþjónustuaðila, sveitarfélög og gesti með aðlaðandi, jákvæðri og uppbyggilegri miðlun. Grindavík – saman í sókn Styrkþegi: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) Styrkupphæð: 16,5 m.kr. Verkefnið miðar að því að skapa samfellu í uppbyggingu samfélags og atvinnulífs í kjölfar hamfara. Með samstarfi, þjálfun, markaðssetningu og virkni samfélagsins á að stuðla að sjálfbærri endurreisn, seiglu og framtíðarsýn. Verkefnið byggir á reynslu og árangri fyrri áfanga og miðar að því að styrkja samstöðu, auka þátttöku og efla jákvæða ímynd bæjarins. Breyting á landsliðshópnum Föstudagurinn 13. ekki óhappadagur hjá Agli Ploder og Thelmu Ekkert samkomulag um lykilatriði Eyjólfur útdeilir 170 milljónum í 14 verkefni Íslensk hollusta festir kaup á Foss Distillery Ríkisstjórnin hangir á grásleppuþræði EES og ESB – eðlismunur, ekki stigsmunur Fleira áhugavert Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Fólk farið að meðtaka veruleikann „Við finnum að símtölin eru þung“ Vínverslun Hagkaups vel tekið Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Hringvegurinn ófær frá Vík að Kirkjubæjarklaustri Viðurkenndi ofbeldi en fékk áfram drengi í fóstur Festist í lyftu á hóteli Gjaldskyldan eldfimt umræðuefni Innilokuð raforka í Blönduvirkjun Loka sundlaugum vegna kulda og þurrkatíðar Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Óvissa um snjómagn á höfuðborgarsvæðinu Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað „Einn mannfjandsamlegasti staður borgarinnar“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Telur skólann vera að bregðast syni sínum Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Breyting á landsliðshópnum Föstudagurinn 13. ekki óhappadagur hjá Agli Ploder og Thelmu Ekkert samkomulag um lykilatriði Eyjólfur útdeilir 170 milljónum í 14 verkefni Íslensk hollusta festir kaup á Foss Distillery Ríkisstjórnin hangir

Share this article