200 mílur | mbl | 13.4.2026 | 14:05 Óttast að byggð leggist af verði frumvarp að lögum Á Hólmavík standa þrjú sjávarútvegsfyrirtæki undir 50 heilsársstörfum, eða um fjórðungi allra starfa í byggðarlaginu. mbl.is/Sigurður Bogi Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Níu sjávarútvegsfyrirtæki og fiskvinnslur á Vestfjörðum hafa sent þingmönnum sameiginlega yfirlýsingu þar sem lagst er harðlega gegn frumvarpi innviðaráðherra um að afnema línuívilnun og skel- og rækjubætur. Er frumvarpið sagt geta haft víðtækar og jafnvel óafturkræfar afleiðingar fyrir byggð í landshlutanum verði það að lögum. Frumvarpið er þriðja mál á dagskrá þingfundar sem hefst kl. 15 í dag. Frétt af mbl.is Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur „Verði frumvarpið að lögum blasir við raunveruleg hætta á verulegri byggðaröskun á Vestfjörðum,“ segir í yfirlýsingunni. „Í versta falli getur byggð lagst af á Drangsnesi og starfsemi fyrirtækja sem bera uppi atvinnulíf á Hólmavík, Suðureyri og sunnanverðum Vestfjörðum dregist verulega saman eða lagst af með tilheyrandi áhrifum á samfélagið í þessum byggðarlögum.“ Burðarásar í sínum samfélögum Fyrirtækin segja að umræddar ívilnanir og byggðaaðgerðir séu grundvöllur heilsársstarfsemi í mörgum sjávarbyggðum. Þær myndi samþætt kerfi sem haldi uppi atvinnu og byggðafestu. „Línuívilnun, skel- og rækjubætur og byggðakvótar eru ekki einangruð úrræði heldur samþætt kerfi sem styðja við hvort annað,“ segir í yfirlýsingunni. Jafnframt er bent á að áhrif frumvarpsins yrðu sérstaklega þung í smærri byggðarlögum. Í Kaldrananeshreppi búi til að mynda 120 manns, þar af 70 á Drangsnesi. Þar er um helmingur starfa bæjarins bundinn við þrjú fyrirtæki í sjávarútvegi, eða um 25 heilsársstörf. „Samfélagið á Drangsnesi stendur því og fellur með þessum fyrirtækjum,“ segir í yfirlýsingunni. Frétt af mbl.is Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Í Strandabyggð búa um 420 manns, þar af um 300 á Hólmavík og þar er staðan sögð svipuð. Þrjú sjávarútvegsfyrirtæki standi undir fjórðungi allra starfa í byggðarlaginu, en um 50 heilsársstörf eru þar undir. „Það liggur í augum uppi að þessi fyrirtæki eru burðarás samfélagsins á Hólmavík,“ segir í umsögninni. „Á Drangsnesi og á Hólmavík starfa 15 manns við beitningu í landi og standa þau störf og falla með línuívilnun, líkt og störf sjö áhafnamanna á þremur bátum sem einnig reiða sig á línuívilnun,“ er útskýrt í yfirlýsingu fyrirtækjanna. „Þótt fyrirtækin búi yfir ákveðnum eignakvóta dugar hann ekki einn og sér til að standa undir heilsársútgerð og vinnslu. Rekstrargrundvöllur og geta þessara útgerða til heilsársstarfsemi byggir því að hluta á byggðaaðgerðum stjórnvalda innan 5,3% kerfisins, það er línuívilnun, skel- og rækjubætur, og almennur og sértækur byggðakvóti.“ Fiskvinnslan Drangur á Drangsnesi. Ljósmynd/Aðsend 5,3% kerfið verði strandveiðar og ekkert annað Í yfirlýsingunni er jafnframt bent á að hið sama sé uppi á teningnum á Suðureyri, þar sem flestir starfi með einum eða öðrum hætti við sjávarútveg og fiskvinnslu. Þar sé línuívilnun ein af lykilforsendum rekstrar. „Sértækur byggðakvóti sem byggir á samningum við Byggðastofnun ásamt almennum byggðakvótum er forsenda þess að hægt sé að halda uppi heilsársvinnslu með einhverjum árangri og afkomu á Suðureyri.“ Þá er bent á að áhrifanna muni gæta með svipuðum hætti í byggðarlögum á borð við Patreksfjörð og Tálknafjörð þar fyrirtæki hafa reitt sig á sem byggðakvóta til heilsársútgerðar. „Í greinargerð frumvarpsins er hvergi nefnt að efla eigi sértæka byggðakvótann sem virkað hefur svo vel og hefur eflt byggðafestu svo um munar í þessum byggðarlögum,“ segir í yfirlýsingunni. „Miðað við viðleitni stjórnvalda til þess að auka strandveiðar á kostnað annarra byggðaaðgerða hlýtur það að vera lokaniðurstaða, vegna aukinnar ásóknar í strandveiðar, að sértækur byggðakvóti muni á endanum víkja fyrir auknum strandveiðum og 5,3% kerfið verði einungis strandveiðar og ekkert annað.“ Raunar er það svo að strandveiðimenn hafa einnig lagst gegn frumvarpinu. „Sú hugmynd að taka þessi örfáu tonn af næstminnstu útgerðunum til að láta í minnstu útgerðirnar, það hugnast okkur alls ekki og ég held að strandveiðiflotinn yfirhöfuð vilji það ekki,“ sagði Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssabands smábátaeigenda í nýlegu viðtali. Frétt af mbl.is Mótmæla frumvarpinu harðlega Óttast fækkun starfa og aukna samþjöppun Í umsögninni er jafnframt bent á að fyrirtækin hafi á undanförnum árum orðið fyrir margvíslegu álagi, þar á meðal hækkun veiðigjalda og kolefnisgjalda, auknum flutningskostnaði og samdrætti í aflaheimildum og byggðaaðgerðum. Fyrirtækin vara við því að verði frumvarpið að lögum muni það leiða til fækkunar heilsárstarfa og að aukning í strandveiðum bæti það ekki upp. Þá sé hætta á að smærri og meðalstór fyrirtæki neyðist til að hætta rekstri eða sameinast stærri aðilum. „Þegar litlu og meðalstóru útgerðir leggja loks upp laupana er það einungis stóru útgerðirnar sem hafa bolmagn til þess að kaupa þá minni.“ Að lokum skora fyrirtæki á ráðherra að hætta við breytingarnar og hefja betra og skýrara samráðsferli við greinina. Undir yfirlýsinguna skrifa: Mikael Steingrímsson fyrir hönd Fiskvinnslunnar Drangs ehf. og Útgerðarfélagsins Skúla ehf á Drangsnesi. Anna Þorbjörg Stefánsdóttir fyrir hönd Útgerðarfélagsins Æðar ehf. á Hólmavík. Friðgeir Höskuldsson fyrir hönd ST2 ehf. á Drangsnesi. Óðinn Gestsson fyrir hönd Fiskvinnslunnar Íslandssögu hf og Norðureyrar ehf. á Suðureyri. Björk Ingvarsdóttir fyrir hönd Vilja Fiskverkunar ehf. og Vissu útgerðar ehf. á Hólmavík. Skjöldur Pálmason fyrir hönd Odda hf. á Patreksfirði. Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Hagnaður Vinnslustöðvarinnar 1,5 milljarðar Sóttu slasaðan skipverja út af Látrabjargi Aðdáunarverð viðbrögð við slysi um borð 400 manns á vorfundi smábátasjómanna Allt uppi á borðum í ársreikningum „Eimskip er eina íslenska kaupskipaútgerðin“ Fengu 155 tonn í róðri um páskana Segir reiðarslagið löngu skollið á Umsóknir heimilaðar meðan björgunarbúnaður er skoðaður Væsti ekki um áhöfnina á páskadag Aðdáunarverð viðbrögð við slysi um borð 400 manns á vorfundi smábátasjómanna Allt uppi á borðum í ársreikningum Samkomulagi náð í Sundahöfn og verkfalli frestað Beint: Vorfundur smábátasjómanna „Eimskip er eina íslenska kaupskipaútgerðin“ Umsóknir heimilaðar meðan björgunarbúnaður er skoðaður Fengu 155 tonn í róðri um páskana Segir reiðarslagið löngu skollið á Væsti ekki um áhöfnina á páskadag Gerir aðra atlögu að NOAA Aðdáunarverð viðbrögð við slysi um borð Boða verkföll í næstu viku „Eimskip er eina íslenska kaupskipaútgerðin“ Nýr fjármálastjóri Benchmark Genetics Væsti ekki um áhöfnina á páskadag Allt uppi á borðum í ársreikningum Fengu 155 tonn í róðri um páskana Hagnaður Vinnslustöðvarinnar 1,5 milljarðar Boðuðu verkfalli farmanna aflýst Fleira áhugavert Kjörsókn aldrei meiri í Ungverjalandi Lofað upp í ermina á Alþingi Segir strengjabrúður Orbán-stjórnarinnar verða að víkja Fólkið mun á endanum gefast upp Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 13.4.26 711,70 kr/kg Þorskur, slægður 13.4.26 878,62 kr/kg Ýsa, óslægð 13.4.26 721,48 kr/kg Ýsa, slægð 13.4.26 618,52 kr/kg Ufsi, óslægður 13.4.26 357,29 kr/kg Ufsi, slægður 13.4.26 422,32 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 13.4.26 380,89 kr/kg Litli karfi 7.4.26 7,74 kr/kg Blálanga, óslægð 25.3.26 295,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 13.4.26 Skinney SF 20 Botnvarpa Ýsa 34.845 kg Ufsi 21.677 kg Þorskur 6.967 kg Langa 3.415 kg Steinbítur 1.105 kg Karfi 982 kg Þykkvalúra 213 kg Skötuselur 80 kg Keila 62 kg Langlúra 32 kg Skarkoli 11 kg Samtals 69.389 kg 13.4.26 Dagur ÞH 110 Línutrekt Þorskur 1.637 kg Ýsa 323 kg Steinbítur 263 kg Skarkoli 14 kg Samtals 2.237 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Hagnaður Vinnslustöðvarinnar 1,5 milljarðar Sóttu slasaðan skipverja út af Látrabjargi Aðdáunarverð viðbrögð við slysi um borð 400 manns á vorfundi smábátasjómanna Allt uppi á borðum í ársreikningum „Eimskip er eina íslenska kaupskipaútgerðin“ Fengu 155 tonn í róðri um páskana Segir reiðarslagið löngu skollið á Umsóknir heimilaðar meðan björgunarbúnaður er skoðaður Væsti ekki um áhöfnina á páskadag Aðdáunarverð viðbrögð við slysi um borð 400 manns á vorfundi smábátasjómanna Allt uppi á borðum í ársreikningum Samkomulagi náð í Sundahöfn og verkfalli frestað Beint: Vorfundur smábátasjómanna „Eimskip er eina íslenska kaupskipaútgerðin“ Umsóknir heimilaðar meðan björgunarbúnaður er skoðaður Fengu 155 tonn í róðri um páskana Segir reiðarslagið löngu skollið á Væsti ekki um áhöfnina á páskadag Gerir aðra atlögu að NOAA Aðdáunarverð viðbrögð við slysi um borð Boða verkföll í næstu viku „Eimskip er eina íslenska kaupskipaútgerðin“ Nýr fjármálastjóri Benchmark Genetics Væsti ekki um áhöfnina á páskadag Allt uppi á borðum í ársreikningum Fengu 155 tonn í róðri um páskana Hagnaður Vinnslustöðvarinnar 1,5 milljarðar Boðuðu verkfalli farmanna aflýst Fleira áhugavert Ísland á EM eftir stórsigur Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Kaus í fyrsta skipti 63 ára Trump setur á hafnbann við Hormússund Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 13.4.26 711,70 kr/kg Þorskur, slægður 13.4.26 878,62 kr/kg Ýsa, óslægð 13.4.26 721,48 kr/kg Ýsa, slægð 13.4.26 618,52 kr/kg Ufsi, óslægður 13.4.26 357,29 kr/kg Ufsi, slægður 13.4.26 422,32 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 13.4.26 380,89 kr/kg Litli karfi 7.4.26 7,74 kr/kg Blálanga, óslægð 25.3.26 295,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 13.4.26 Skinney SF 20 Botnvarpa Ýsa 34.845 kg Ufsi 21.677 kg Þorskur 6.967 kg Langa 3.415 kg Steinbítur 1.105 kg Karfi 982 kg Þykkvalúra 213 kg Skötuselur 80 kg Keila 62 kg Langlúra 32 kg Skarkoli 11 kg Samtals 69.389 kg 13.4.26 Dagur ÞH 110 Línutrekt Þorskur 1.637 kg Ýsa 323 kg Steinbítur 263 kg Skarkoli 14 kg Samtals 2.237 kg Skoða allar landanir »