Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Eyjólfur styrkir samgöngur á fjórum stöðum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.3.2026 | 13:45 Eyjólfur styrkir samgöngur á fjórum stöðum Markmiðið er að styðja við þróun almenningssamgangna milli byggða. mbl.is/Eggert Setja bókamerki Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur staðfest tillögur valnefndar um verkefnastyrki til almenningssamgangna á milli byggða. 25 milljónum króna var úthlutað til fjögurra verkefna. Alls bárust átta umsóknir um styrki að fjárhæð tæpar 74 milljónir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu. Um er að ræða aðgerð A.10 á byggðaáætlun, Almenningssamgöngur milli byggða, en markmiðið er að styðja við þróun almenningssamgangna milli byggða, m.a. til að tengja við ýmsa sérakstursþjónustu. Verkefnin sem hljóta styrk eru: Almenningssamgöngur á milli Djúpavogs og Egilsstaða Umsækjandi: Múlaþing. Styrkur: 10 milljónir kr. Markmið verkefnisins er að koma á reglubundnum almenningssamgöngum milli Egilsstaða og Djúpavogs til að mæta þörfum nemenda frá Djúpavogi sem stunda nám við Menntaskólinn á Egilsstöðum. Um 30 nemendur við ME eru frá Djúpavogi en engar almenningssamgöngur eru í boði milli staðanna yfir vetrartímann. Tómstundaakstur í Þingeyjarsveit Umsækjandi: Þingeyjarsveit. Styrkur: 6 milljónir kr. Tilgangur verkefnisins er að jafna aðstöðu barna og ungmenna til að taka þátt í tómstundastarfi á vegum sveitarfélagsins eða félagasamtaka innan þess. Ákall um tómstundaakstur hefur aukist þar sem fólk er bundið af vinnu og hefur ekki tök á að skutla börnum, fjölskyldu eða nágrönnum langar vegalengdir í tómstundastarf. Brú milli byggða – aðgengi barna að íþróttum Umsækjandi: Húnabyggð. Styrkur: 5 milljónir kr. Verkefnið byggir á auknu samstarfi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra á sviði íþrótta, með áherslu á hópíþróttir, og snýr að því að samræma betur framboð íþróttastarfs milli byggðarlaga. Í samstarfi við íþróttafélögin Hvöt á Blönduósi og Tindastól á Sauðárkróki á að samræma æfingatíma, ferðaskipulag og nýtingu aðstöðu þannig að börn og ungmenni hafi góðan aðgang að íþróttastarfi óháð búsetu. Bætt tenging innbæjarstrætó Reykjanesbæjar við Landsbyggðarstrætó Umsækjandi: Reykjanesbær. Styrkur: 4 milljónir kr. Verkefnið er tilraunaverkefni til eins árs og snýr að því að tengja leiðarkerfi innanbæjarstrætó Reykjanesbæjar við Landsbyggðarstrætó með því að bæta við tveimur morgunferðum á virkum dögum við núverandi leiðarkerfi innanbæjarstrætó. Markmiðið er að koma til móts við íbúa Reykjanesbæjar sem nýta sér Landsbyggðarstrætó vegna náms, íþrótta eða atvinnu eða til að sækja þjónustu af ýmsu tagi. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Jákvæðar fréttir af sóknarmanni Arsenal Eyjólfur styrkir samgöngur á fjórum stöðum Vitnum boðin áfallahjálp Tekur við danska stórliðinu Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Sýnið á ESB-spilin fyrir fram en ekki eftir á Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Fljúgandi skíði á þjóðveginum Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Um 3.500 bandarískir hermenn komnir á svæðið Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Fá ekki leyfi til að rífa braggann Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Almenningur borgar skattahækkanir Gistiheimili í húsi ríkislögreglustjóra Þórdís tekur við af Jakobi „Það harma náttúrulega allir þessa stöðu“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Jákvæðar fréttir af sóknarmanni Arsenal Eyjólfur styrkir samgöngur á fjórum stöðum Vitnum boðin áfallahjálp Tekur við danska stórliðinu Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Sýnið á ESB-spilin fyrir fram en ekki eftir á Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fá ekki leyfi til að rífa braggann Hópur ferðamanna setti allt í vasana Almenningur borgar skattahækkanir Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Fá ekki leyfi til að rífa braggann Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Almenningur borgar skattahækkanir Gistiheimili í húsi ríkislögreglustjóra Þórdís tekur við af Jakobi „Það harma náttúrulega allir þessa stöðu“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri

Share this article