Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vantar „nokkuð hundruð milljónir á ári“ til að reka núverandi almenningssamgöngur á landsbyggðinni

Read Full Article →

Drög að samgönguáætlun gera ráð fyrir að framlög til Vegagerðarinnar vegna almenningssamgangna á landsbyggðinni lækki á næstu árum. „Fjárveitingarnar minnka um 100 milljónir á ári næstu fimm árin, svona í grófum dráttum. Þannig að okkur vantar nokkuð hundruð milljónir á ári til að reka núverandi kerfi,“ segir Hilmar Stefánsson, forstöðumaður almenningssamgangna hjá Vegagerðinni. Vegagerðin hættir akstri milli Patreksfjarðar, Tálknafjarðar og Bíldudals 1. mars, þegar samningur rennur út. Sveitarstjóri Vesturbyggðar og Ungmennaráð Vestfjarða hafa gagnrýnt ákvörðunina þar sem Vegagerðin eigi að sjá um akstur milli byggðalaga. „Vegagerðin sér um rekstur almenningssamgangna milli byggðarlaga, auk þess að sjá um rekstur Loftbrúar.“ Hilmar bendir hins vegar á að stefna stjórnvalda í almenningssamgöngum milli byggða kom út árið 2019 undir nafninu Ferðumst saman . Þar segir að akstur innan einstakra sveitarfélaga sé á forræði þeirra. „Stefna þessi miðast við þá aðkomu og þær leiðir sem ríkið kemur að með beinum hætti, þ.e. milli byggða. Almenningssamgöngur innan einstakra sveitarfélaga eru enda á forræði þeirra.“ Sveitarstjóri Borgarbyggðar hefur einnig gagnrýnt þessa túlkun Vegagerðarinnar, ekki síst þegar stjórnvöld hafa hvatt sveitarfélög til sameiningar. „Þarna er kannski eitthvað ágreiningsefni hvernig þessum málum skuli háttað við sameiningar. Þetta segir í stefnunni og það þarf þá kannski að skýra betur hvað þetta nákvæmlega þýðir,“ segir Hilmar. Hilmar segir að Vegagerðin hafi ekki fjármagn til að sinna akstri umfram skyldur sínar. „Það liggur fyrir niðurskurður á fjárveitingum til almenningssamgangna í fjárlögum og miðað við þær fjárveitingar sem eru fyrirhugaðar á næstu fimm árum samkvæmt tillögum í samgönguáætlun liggur fyrir að það er talsverð skerðing,“ segir Hilmar. Ungmenni á Vestfjörðum hafa gagnrýnt skort á almenningssamgöngum innan fjórðungsins. Í umsögn Ungmennaráðs Vestfjarða til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis vegna samgönguáætlunar gagnrýndu þau að ekkert samráð hafi verið haft við Vestfirðinga um endurskoðun leiðakerfis Strætó á landsbyggðinni líkt og gert var í öðrum landshlutum. Hilmar tekur undir að leiðakerfi strætó á Vestfjörðum sé ekki öflugt en bendir á að til almenningssamgangna teljist líka ferjur og flugleiðir, eins og á Ísafjörð og Bíldudal. Hann segir standa til að fara yfir samgöngur á Vestfjörðum og Austfjörðum í næsta fasa endurskoðunar leiðakerfisins. Sú vinna sé þegar hafin en yfirvofandi niðurskurður setji strik í reikninginn. Aðspurður segir hann Vegagerðina ekki hafa bolmagn til að hefja almenningssamgöngur á landi innan Vestfjarða eins og tölurnar líta út í dag. „Þetta er í vinnslu í ráðuneytinu. Ég veit að það er mikill vilji til og ráðherra hefur lýst því yfir í fjölmiðlum að það standi til að styrkja almenningssamgöngur á landsvísu og við trúum því bara og treystum að svo verði,“ segir Hilmar að lokum.

Share this article