Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

„Þetta snertir heimilin“

Read Full Article →

Efnahagsumhverfi verktakageiranum hefur versnað hratt og samdráttarmerkin eru sérstaklega skýr í húsnæðisuppbyggingu. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. „Framvirkir mælikvarðar eru veikir,“ segir Sigurður. „Um 43% stjórnenda arkitekta- og verkfræðistofa búast við færri verkefnum tengdum hönnun íbúða á næsta ári og meirihluti stjórnenda í byggingariðnaði væntir verri efnahagsaðstæðna á næstu 6-12 mánuðum samkvæmt nýlegri könnun sem Samtök iðnaðarins gerðu meðal stjórnenda í febrúar og mars á þessu ári. Það er algjör viðsnúningur frá því fyrir ári síðan." Sjá einnig Bygginga­markaður kominn í al­var­legan hæga­gang „Á fyrri hluta ársins 2025 fór velta í greininni að dragast saman, í fyrsta sinn síðan 2021,“ segir Sigurður. „Fjölgun starfandi í greininni, sem hefur verið samfelld síðustu fjögur ár, hefur stöðvast og atvinnuleysi er nú farið að aukast. Nær 1.300 manns eru nú atvinnulausir í greininni samanborið við tæplega 1.000 fyrir ári. Líklegt er að þessi þróun haldi áfram, enda gera fleiri stjórnendur ráð fyrir að fækka starfsfólki á næstu 12 mánuðum en að fjölga því, sem er viðsnúningur frá stöðunni fyrir ári.“ „Byggingariðnaður og mannvirkjagerð er stór og mikilvæg grein í íslensku hagkerfi,“ segir Sigurður. „Hún velti um 689 milljörðum króna í fyrra og í henni störfuðu um 20 þúsund manns að jafnaði. Greinin skapar um átta prósent af landsframleiðslu með beinum hætti og enn meira ef óbein áhrif eru tekin með. Þegar svona stór grein fer úr vexti í samdrátt hefur það áhrif á hagkerfið allt og ekki síður þegar uppbygging húsnæðis og innviða hægir á sér. Við teljum að nú séu vatnaskil, greinin er farin úr vexti í samdrátt og það þarf breytta stefnu ef vandinn á ekki að vaxa. Þetta snýst ekki bara um stöðu byggingarfyrirtækja, þetta snertir heimilin beint í gegnum húsnæðismarkað og vinnumarkað.“ Sigurður segir verktaka sannarlega hafa dregið verulega úr nýjum verkefnum. „Helstu skýringarnar eru háir vextir og strangari lánaskilyrði,“ segir hann. „Í nýlegri könnun Samtaka iðnaðarins segja 90% stjórnenda að háir vextir hafi dregið úr uppbyggingaráformum og 87% segja að sölutími íbúða hafi lengst. Þar nefna 80% háa vexti og 67% strangari lánaskilyrði sem helstu ástæður. Þetta þýðir í reynd að verkefni frestast, færri fara af stað og það hægist á uppbyggingu, sér í lagi uppbyggingu íbúða.“ Staðan orðin alvarleg Að sögn Sigurðar er staðan orðin alvarleg í byggingageiranum. „Arðsemi í greininni hefur minnkað mikið og er orðin lág miðað við aðrar greinar hagkerfisins,“ segir hann. „Háir vextir og lenging sölutíma auka áhættu í greininni, eins og fram kemur í könnun sem við gerðum meðal stjórnenda fyrr á þessu ári. Seðlabankinn hefur einnig bent á aukna áhættu í greininni sem undirstrikar að þetta er ekki bara rekstrarlegt vandamál hjá einstökum fyrirtækjum heldur einnig kerfislegt áhyggjuefni. Auk þess hafa stjórnvöld dregið mátt úr íbúðauppbyggingu með hækkun á sköttum og gjöldum á húsbyggjendur og fasteignaeigendur. Þá hefur ríkisstjórnin boðað aukna skattlagningu á söluhagnað af íbúðum og hærri skatta á leigutekjur auk lækkunar á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað. Þetta dregur úr eftirspurn íbúða, hægir á uppbyggingu og getur ógnað fjármálastöðugleika við núverandi aðstæður.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article