Innlent | Morgunblaðið | 22.2.2026 | 22:19 Hægir á byggingu íbúða næstu árin 9.000 íbúðir voru í byggingu árið 2023 en aðeins 6.000 nú. mbl.is/Eyþór Þóroddur Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Beint: Mánaðarskýrsla HMS kynnt 74% íbúða seldust á undirverði Svartsýni í könnun SI um markaðinn Íbúðaverð hækkaði um 1,7% í janúar » Fleiri tengdar fréttir Stjórnendur arkitekta- og verkfræðistofa vænta samdráttar í verkefnum á íbúðamarkaði á næstunni samkvæmt nýrri könnun Outcome fyrir Samtök iðnaðarins, SI. Eins og fram kemur í greiningunni eru arkitekta- og verkfræðistofur framarlega í byggingarferlinu og gefa niðurstöðurnar vísbendingu um að hægja muni að óbreyttu á uppbyggingu íbúða litið til næstu 1-2 ára. Kort/mbl.is Eins og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI segir í samtali við Morgunblaðið eru þetta ekki góðar fréttir fyrir markaðinn sem hefur verið að kalla eftir fleiri íbúðum en ekki færri. „Oft er sagt að arkitektar og verkfræðingar séu kanarífuglinn í kolanámunni. Þeir eru sá geiri innan mannvirkjagerðar sem fyrst finnur fyrir samdrætti,“ segir Sigurður. Samkvæmt könnuninni hefur uppbygging dregist saman undanfarin ár. Þannig voru 9.000 íbúðir í byggingu árið 2023 en aðeins 6.000 nú. Sláandi tölur Sigurður tekur undir að tölurnar séu sláandi. „Ef við skoðum ástæðurnar fyrir þessu þá eru það háir vextir sem draga úr fjárfestingu í uppbyggingu íbúða og einnig hert lántökuskilyrði fyrir einstaklinga. Seðlabankinn stýrir hvorutveggja. Hann vill koma á verðstöðugleika á húsnæðismarkaði sem hefur tekist í hagfræðilegum skilningi en vandinn er að undirliggjandi kraftar benda til óstöðugleika í framtíðinni. Þar á ég við hina lýðfræðilegu þætti, fólki fjölgar, þjóðin eldist og leitnin er í þá átt að færri verða í hverri íbúð í framtíðinni.“ Þarna vísar Sigurður m.a. til þróunar í nágrannalöndunum. „Við erum alltaf aðeins á eftir í þróuninni á Norðurlöndum.“ Hann segir að sveitarfélögin horfi ekki til nógu langs tíma. „Þarna er horft til alltof skamms tíma því tímalínur í íbúðabyggingum eru svo langar.“ Sigurður nefnir góðan fund sem SI og verkalýðsfélagið VR héldu á dögunum. „Þar var þetta gert að umtalsefni, hvað það tekur í raun langan tíma að byggja upp hverfi. Það er ekki bara sjálf uppbyggingin heldur miklu frekar skipulagsferlið sem er tafsamt.“ Á fundinum var Blikastaðalandið í Mosfellsbæ nefnt sem dæmi. „Það var keypt í lok síðustu aldar og uppbygging er enn ekki hafin. Sama má segja um uppbyggingu á Ártúnshöfða o.fl.“ Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins. mbl.is/Árni Sæberg Þungt hljóð í verktökum Sigurður kallar eftir því að ríkið taki meiri ábyrgð og þrýsti á sveitarfélögin að skipuleggja til lengri tíma. Auka þurfi skilvirkni og hagkvæmni sömuleiðis. Hann segir að SI og VR vilji koma hreyfingu á hlutina og hvetja aðra til að leggja sín lóð á vogarskálar til að uppbygging geti mætt þörfum samfélagsins. „Við ræddum líka stóraukna gjaldtöku sveitarfélaga á fundinum sem virkar sem hemill á uppbyggingu, sem er þvert á það sem okkur vantar.“ Spurður um hljóðið í verktökum, félagsmönnum SI, sem byggja fyrir eigin reikning, segir Sigurður það þungt. Þá segir hann að samskipti við sveitarfélögin séu oft skrautleg. Dæmi um slíkt hafi komið fram á fundi SI og VR. „Sveitarfélögin eru í svo mikilli yfirburðastöðu gagnvart borgurunum. Það þorir enginn að styggja þau af ótta við að fá ekki lausn sinna mála, sem er mjög bagalegt.“ Sölutími lengst Í annarri könnun Outcome fyrir SI, sem gerð var meðal verktaka sem eru að byggja íbúðir fyrir eigin reikning, kemur fram að af þeim sem voru með íbúðir í sölu á undanförnum 12 mánuðum telja 87% þeirra að sölutími íbúða hafi lengst á tímabilinu. Tæp 9% segja hann hafa staðið í stað og um 4% telja sölutímann hafa styst á þessum tíma. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Beint: Mánaðarskýrsla HMS kynnt 74% íbúða seldust á undirverði Svartsýni í könnun SI um markaðinn Íbúðaverð hækkaði um 1,7% í janúar » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Sinueldar víðar í dag og í kvöld Bandaríkjamenn Ólympíumeistarar í fyrsta skipti í hartnær hálfa öld Hægir á byggingu íbúða næstu árin Óeirðir brutust út eftir morðið á „El Mencho“ Er hægt að gera föðurlausan son arflausan? Umræðan Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Það eina sem heldur Pútín á lífi Hægir á byggingu íbúða næstu árin Líf verður oddviti VG Sinueldurinn slökktur norðanmegin Mest lesið Í gær Í vikunni Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Nýjast á mbl.is » Sinueldar víðar í dag og í kvöld Bandaríkjamenn Ólympíumeistarar í fyrsta skipti í hartnær hálfa öld Hægir á byggingu íbúða næstu árin Óeirðir brutust út eftir morðið á „El Mencho“ Er hægt að gera föðurlausan son arflausan? Umræðan Farsæld Íslands Engin samningsmarkmið um innflutning dýra þýðir óbærilegt tjón Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telur að Guðmundarlundi hafi verið bjargað Fólk hvatt til að halda sig fjarri eldinum Forstjóri Norðuráls: Tekur 90 daga Sinueldurinn hefur verið slökktur Mest lesið Í gær Í vikunni Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Andlát: Haraldur Sigurðsson Gul viðvörun í kvöld Verður þúsund manna atvinnusvæði Tvær rútur utan vegar: Ferðamenn fluttir á hótel Bakkaði ítrekað á hús Krökkt í Hlíðarfjalli og lögregla lokaði veginum Allt tiltækt lið kallað út vegna hamfarakokks Ólafur Ragnar: Vissi ekki að þetta væri Epstein Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu