Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Horfurnar dekkri en áður“

Read Full Article →

Fasteignamarkaðurinn hefur kólnað á undanförnum mánuðum og íbúðir seljast undir auglýstu verði. Samtök iðnaðarins greina samdrátt í byggingu íbúða næsta árið . Það rímar við nýja skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þar segir að virkni á fasteignamarkaði hafi verið töluverð í fyrra þegar þrettánda hver íbúð á landinu gekk kaupum og sölum. Undanfarna mánuði hafi markaðurinn kólnað og færst í aukana að íbúðir á höfuðborgarsvæðinu seljist undir auglýstu verði. Í desember seldust 74 prósent íbúða undir auglýstu verði samanborið við 67 prósent í desember 2024. Væntingar um minni uppbyggingu þvert á það sem þarf Undir eitt prósent stjórnenda arkitekta- og verkfræðistofa telja að verkefnum fjölgi á næstu 12 mánuðum. Tæplega 59 prósent telja að verkefnum eigi hvorki eftir að fjölga né fækka. Þá telja um 43 prósent að verkefnum fækki. „Við erum að sjá samdrátt á næstunni. Arkitektar og verkfræðingar eru þeir sem eru í rauninni fyrstir í röðinni þegar kemur að verklegum framkvæmdum og þar eru horfurnar dekkri en áður. Þannig að það gefur væntingar um minni umsvif og uppbyggingu á næstunni sem er kannski þvert á það sem þarf,“ segir Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Skuldir aukast og staða verktaka þyngist Í skýrslu HMS segir einnig að skuldir í byggingariðnaði hafi aukist samhliða dræmri sölu nýrra íbúða. „Við sjáum það líka að staða verktakanna er að þyngjast og það tekur lengri tíma að selja. Sveitarfélög hafa stórhækkað gjaldtöku og svo framvegis. Þannig að það er margt sem kemur saman í eina átt,“ segir Sigurður. Áherslur sveitarfélaga séu ekki í takt við áhuga almennings Þá segir Sigurður áherslur sveitarfélaga í skipulagsmálum og húsnæðisuppbyggingu ekki í takt við áhuga almennings. „Íbúðir eru þá of stórar, það vantar bílastæði eða þær eru ekki á réttu stöðunum og svona. Þannig að þetta er eitthvað sem sveitarfélögin auðvitað verða að taka til sín,“ segir hann. „Ríkið þarf að taka miklu meiri ábyrgð og vera verkstjóri í þessum málum“ Samtök iðnaðarins, stærstu samtök atvinnurekenda á landinu og VR, stærstu samtök launþega, hafi tekið höndum saman um að finna samhljóm í húsnæðismálum. „Og um leið hvetja aðra til þess að gera það sem þau þurfa að gera til þess að ná fram umbótum. Vegna þess að það eru mjög margir sem koma að þessu. Ríkið setur leikreglurnar, sveitarfélögin sjá um framkvæmdina og skipulagsmálin og verktakarnir byggja svo. En ríkið þarf að taka miklu meiri ábyrgð og vera verkstjóri í þessum málum,“ segir Sigurður. Fasteignamarkaður í vítahring vaxta og verðbólgu Hann segir stöðuna mikið áhyggjuefni og skýra vísbendingu um kólnun hagkerfisins. Háir vextir tefji uppbygginguna enn frekar. „Við erum auðvitað í ákveðnum vítahring því hækkanir á húsnæðisverði hafa verið rótin að verðbólgu, þangað til kannski núna. Og vextir háir sem gerir það að verkum að það er minna byggt á tímum þar sem þarf að byggja meira. Þannig að hagstjórnin þarna er ekki alveg eins og best verður á kosið,“ segir Sigurður.

Share this article