Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Arkitektar svartsýnir á framhaldið

  • What: A survey indicates that nearly half of the managers of architecture and engineering firms believe that housing market projects will decrease in the next twelve months.
  • Impact: The construction industry may face a slowdown due to high interest rates and municipal increases.
Read Full Article →

Nærri helmingur stjórnenda arkitekta- og verkfræðistofa telur að verkefnum á íbúðamarkaði fækki á næstu tólf mánuðum. Meirihlutinn telur að verkefnin standi í stað en sárafáir telja að þeim fjölgi. Þetta er niðurstaða könnunar Samtaka iðnaðarins. Samkvæmt henni telja 55 prósent stjórnenda að verkefnum hvorki fækki né fjölgi, 43 prósent telja að þeim fækki og aðeins eitt prósent telur að þeim fjölgi. Samtökin könnuðu líka mat stjórnenda verktækjafyrirtækja sem byggja íbúðir á eigin reikning. Þeir telja að nokkurn veginn jafn margar íbúðir verði í byggingu eftir tólf mánuði eins og nú. Háir vextir og hækkanir sveitarfélaga dragi úr framkvæmdum. Unnið að byggingu húss. Mynd úr safni.Alþingi

Share this article