Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Úthlutaði 600 milljónum til 11 verkefna

Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.3.2026 | 13:13 Úthlutaði 600 milljónum til 11 verkefna Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á ferð um Nesjavelli. Ljósmynd/Stjórnarráðið Setja bókamerki Loftslags- og orkusjóður hefur úthlutað 600 milljónum króna til 11 verkefna sem miða að nýsköpun og tækniþróun í jarðvarmanýtingu. Úthlutað var á grundvelli breytinga sem Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra gerði á reglugerð um loftslags- og orkusjóð síðasta haust. Þetta er framhald af átakinu Jarðhiti jafnar leikinn sem fól í sér fjárfestingarstuðning við leit og nýtingu jarðhita til almennrar húshitunar árið 2025. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands . Þar segir að þau verkefni sem nú séu studd snúist ekki aðeins um jarðhitanýtingu til húshitunar heldur einnig um jarðhitatengda verðmætasköpun og tækniþróun. Mörg þeirra lúti með einum eða öðrum hætti að djúpborun, en einnig séu verkefni styrkt sem falli undir þróun á tækni til viðhalds á hefðbundnum búnaði, smáskjálftarannsóknir, bætta nýtingu varma og nýtingu varmadælna við jarðhitakerfi. Djúpborun á Nesjavöllum Tæplega 310 milljónir króna renna til verkefnisins IDDP3, djúpborunar á Nesjavöllum, sem er samstarfsverkefni Orkuveitu Reykjavíkur, Landsvirkjunar, HS Orku og stjórnvalda, en um er að ræða stærsta styrkinn sem var úthlutað nú. Markmiðið með verkefninu er að bora dýpra ofan í jörðina og hagnýta jarðhita við hærra hitastig en áður hefur reynst mögulegt. Takist að virkja raforku með þessum hætti verður unnt að margfalda framleiðslugetu hverrar borholu á komandi árum, segir í tilkynningunni. Ísland stendur framarlega í rannsóknum og þróun á þessu sviði, en í fyrra undirrituðu umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun og HS orka viljayfirlýsingu um að flýta djúpborunarverkefninu á Nesjavöllum og ráðast í framkvæmdir strax árið 2026. Jarðhitanýting á Ísafirði og boranir á Gálmaströnd Orkubú Vestfjarða hlaut næsthæsta styrkinn. Annars vegar 160 milljónir vegna jarðhitanýtingar á Ísafirði og hins vegar 25 milljónir vegna borana á Gálmaströnd yst í Steingrímsfirði en síðara verkefnið snýst um að skapa forsendur til aukinnar atvinnuuppbyggingar og verðmætasköpunar í Strandabyggð, eins og segir í tilkynningunni. Stærsta fjárfestingarátakið á þessari öld Haft er eftir Jóhanni Páli Jóhannssyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að ráðist hafi verið í stærsta fjárfestingarátak ríkisins í jarðhitamálum á þessari öld á fyrsta ári kjörtímabils ríkisstjórnarinnar. „Fyrst settum við milljarð í rannsóknarboranir og varmadæluvæðingu, frá Patreksfirði og Bolungarvík til Vestmannaeyja og Víkur í Mýrdal. En nú göngum við lengra, með jarðhitastyrkjum sem snúast ekki aðeins um almenna húshitun heldur líka um verðmætasköpun og tækniþróun, meðal annars um næstu kynslóð jarðhitanýtingar þar sem við sækjum dýpra ofan í jörðina, eftir meiri hita en áður hefur verið virkjaður. Ég hef gríðarlega trú á að hér geti Ísland rutt brautina.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tiger Woods þögull sem gröfin Þolir enga bið Hegseth: Engin ákveðin tímaáætlun liggur fyrir Litur sem færir Miðjarðarhafið inn í matseldina Tekjur Alvotech jukust um 21% Umræðan Tölum íslensku Árangur í útlendingamálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hverju er hægt að treysta?“ Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Framlegðarhlutur olíufélaga hækkað verulega Ríkið verði að draga úr eigin eftirspurn Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Sigríður telur að sér vegið Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Sunnan hvassviðri eða stormur víða um land Holtavörðu- og Öxnadalsheiði lokaðar Gæti dugað fyrir allt að 400 íbúðum Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Drukknir menn reikuðu um gólfið „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Nýjast á mbl.is » Tiger Woods þögull sem gröfin Þolir enga bið Hegseth: Engin ákveðin tímaáætlun liggur fyrir Litur sem færir Miðjarðarhafið inn í matseldina Tekjur Alvotech jukust um 21% Umræðan Tölum íslensku Árangur í útlendingamálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Furðulegt að hlusta á skammir „Hverju er hægt að treysta?“ Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Framlegðarhlutur olíufélaga hækkað verulega Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Sigríður telur að sér vegið Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Sunnan hvassviðri eða stormur víða um land Holtavörðu- og Öxnadalsheiði lokaðar Gæti dugað fyrir allt að 400 íbúðum Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Drukknir menn reikuðu um gólfið „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“

Share this article