Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Úthlutaði styrkjum upp á 70 milljónir

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.3.2026 | 12:00 Úthlutaði styrkjum upp á 70 milljónir Logi Már Einarsson í Iðnó í gærkvöldi. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Gervigreind Vilja stíga alvöruskref í gervigreind Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Æfa samskipti með gervigreind Wayne Louw ráðinn aðalrekstrarstjóri Verne Keppinautar neituðu að haldast í hendur » Fleiri tengdar fréttir Íslenska Vænir Eirík um slagsíðu í svari á Vísindavefnum Íslenska mest töff tungumál í heimi Snorri: Íslenskan ekki lykillinn að samfélaginu Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba Setja 200 milljónir til að styðja við nýjungar » Fleiri tengdar fréttir Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, úthlutaði í gær styrkjum upp á um 70 milljónir króna úr máltæknisjóðnum Skerfi, sem ætlað er að hvetja til notkunar tækni í íslensku og máltækni. Sjóðurinn er hvatasjóður þar sem þeir sem fá úthlutað styrkjum leggja jafn mikið út á móti. Frétt af mbl.is Vilja stíga alvöruskref í gervigreind Ráðherrann úthlutaði styrkjunum í opnunarhófi samnorrænu gervigreindarmiðstöðvarinnar New Nordics AI, sem fór fram í Iðnó í gærkvöldi. Var styrkjunum úthlutað í annað sinn en á síðasta ári hlaut ýmiss konar starfsemi styrki, þar á meðal sprotafyrirtæki í menntageiranum, heilbrigðisgeiranum og fjölmiðlageiranum. Margt var um manninn í Iðnó í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson Styrkþegar eru: APRÓ – Liðsauki . Þróun gervigreindarlausnar á íslensku fyrir sveitarfélög, byggð á aðlagaðri útgáfu af LibreChat, hlaut 1.550.000 kr. Bara tala – Bara krakkar . Þróun nýs snjallforrits sem styður börn við að læra íslensku með gagnvirkum æfingum og máltæknilausnum, hlaut 15.000.000 kr. Belgingur ehf . – Spáfríður. Hugbúnaður sem býr til sjálfvirkar veðurspár á íslensku út frá veðurgögnum, hlaut 3.425.000 kr. Fjölmennt og Miðeind – Auðlesið . Endurbætur á lausn sem einfaldar texta á íslensku svo þeir verði auðlesnari fyrir fólk með lestrarerfiðleika eða sem er að læra málið, hlaut 5.250.000 kr. GET Ráðgjöf ehf. – Synia vörustjórinn . Hugbúnaðarlausn sem gerir leit á íslensku skilvirkari í vefverslunum og vörukerfum með því að skilja íslenskt mál betur, hlaut 4.640.000 kr. Grammatek – Leslingur . Þróun íslenskrar lestrarstiku fyrir Windows sem hjálpar fólki að fylgja texta og fá hann lesinn upp, hlaut 2.250.000 kr. Hljóðbókasafnið og Grammatek – MathCAT Ísland . Þróun lausnar sem gerir talgervlum kleift að lesa stærðfræði, vísindatexta og önnur STEM-tákn á íslensku, hlaut 4.135.000 kr. KatlaCode ehf. – MedModernIceBERT . Þjálfun sérhæfðs íslensks mállíkans sem getur unnið með flókin sjúkragögn og texta í heilbrigðiskerfinu, hlaut 2.500.000 kr. Lóalóa – Máltækni í greiningu stafræns efnis. Innleiðing íslenskrar máltækni í hugbúnað sem hjálpar stofnunum að skipuleggja, flokka og greina stafrænt efni sitt, hlaut 6.000.000 kr. Miðeind – Lísa . Innleiðing ljóslestrarlausnar í Málstað sem gerir notendum kleift að skanna texta og fá hann lesinn eða unninn stafrænt, hlaut 5.250.000 kr. Overcast ehf. – Íslenskt mál í Wagtail . Verkfæri fyrir vefritstjóra sem notar máltækni til að þýða og yfirfara texta sjálfvirkt í vefumsjónarkerfinu Wagtail, hlaut 4.300.000 kr. Raddlist – Málhljóðavaktin . Þróun máltæknilausnar sem styður við kennslu í framburði og læsi með greiningu á íslenskum málhljóðum, hlaut 3.500.000 kr. Sýn ehf. – Málrýnir í ritstjórnarkerfi Vísis . Innleiðing íslensks málrýnis í ritstjórnarkerfi Vísis til að bæta stafsetningu og málfar í fréttum, hlaut 2.755.000 kr. Sýn ehf. – Sjálfvirk textun útvarpsviðtala . Þróun lausnar sem breytir tali úr útvarpsviðtölum sjálfkrafa í texta, hlaut 2.800.000 kr. Sýn ehf. – Sjálfvirk þýðing og yfirlestur skjátexta . Innleiðing máltæknilausna til að þýða og yfirfara skjátexta sjálfvirkt í framleiðsluferlum Sýnar, hlaut 1.475.000 kr. Undralingur – Upplestrarþjálfun með lifandi lestrarbókum . Þróun lausnar þar sem börn æfa upplestur með gagnvirkum bókum sem bregðast við lestri þeirra, hlaut 7.000.000 kr. Logi Már heilsar upp á Nelli Blinova frá tæknimálaráðuneyti Úkraínu og Ceciliu Leveaux frá norrænu ráðherranefndinni. Katrín Jakobsdóttir, fyrsti stjórnarformaður New Nordics AI og fyrrverandi forsætisráðherra, stendur hjá. mbl.is/Eggert Jóhannesson Stjórnendur úr atvinnulífinu og frá hinu opinbera fengu boð á opnunarhófið. mbl.is/Eggert Jóhannesson Kalla saman fólk sem hefur áhrif Stjórnendur úr atvinnulífinu og frá hinu opinbera fengu boð á opnunarhóf samnorrænu gervigreindarmiðstöðvarinnar New Nordics AI. Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, sem kemur að stofnun gervigreindarmiðstöðvarinnar, segir að meiningin hafi verið að kalla saman fólk sem hefur áhrif til að stíga alvöruskref í gervigreind. „Við erum auðvitað að vona að í gegnum þetta getum við lyft gervigreindarmálum svolítið á Íslandi í gegnum New Nordics AI.“ Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima en hann er einnig stjórnarformaður Almannaróms. mbl.is/Eggert Jóhannesson Gleðin var við völd í Iðnó. mbl.is/Eggert Jóhannesson Valinn maður í hverju rúmi Logi Már Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra flutti ávarp á opnunarhófinu og Gísli Ragnar Guðmundsson, verkefnastjóri New Nordics AI á Íslandi, flutti erindi. Katrín Jakobsdóttir, fyrsti stjórnarformaður New Nordics AI, stýrði pallborðsumræðum þar sem einnig tóku þátt Nelli Blinova frá tæknimálaráðuneyti Úkraínu, Þorsteinn Siglaugsson frá Hagstofunni, Finnur Pind frá Treble Technologies og Cecilia Leveaux frá norrænu ráðherranefndinni. Fundarstjóri var Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima en hann er einnig stjórnarformaður Almannaróms. mbl.is/Eggert Jóhannesson mbl.is/Eggert Jóhannesson Tengdar fréttir Gervigreind Vilja stíga alvöruskref í gervigreind Geta ekki tilgreint í hvað gervigreind er notuð Æfa samskipti með gervigreind Wayne Louw ráðinn aðalrekstrarstjóri Verne Keppinautar neituðu að haldast í hendur » Fleiri tengdar fréttir Íslenska Vænir Eirík um slagsíðu í svari á Vísindavefnum Íslenska mest töff tungumál í heimi Snorri: Íslenskan ekki lykillinn að samfélaginu Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba Setja 200 milljónir til að styðja við nýjungar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gagnrýnir framkvæmd úttektar Many people rescued from impassable mountain pass Norskur einkaspæjari dæmdur fyrir svikamyllu Quang Le fær ekki að opna bankareikning Nítján ára leikmaður í fangelsi fyrir kynferðisbrot Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Slæmt ástand grunn- og leikskólabygginga í borginni Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Síminn að kaupa miðla Sýnar Varðskipin verði oftar við gæslustörf Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Færð getur spillst víða í nótt Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Gagnrýnir framkvæmd úttektar Many people rescued from impassable mountain pass Norskur einkaspæjari dæmdur fyrir svikamyllu Quang Le fær ekki að opna bankareikning Nítján ára leikmaður í fangelsi fyrir kynferðisbrot Umræðan Það sem við vitum (og ekki) Hvers vegna þarf að breyta stjórnarskrá vegna ESB-aðildar? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Snjókoma um norðanvert landið Quang Le fær ekki að opna bankareikning Mest lesið Í gær Í vikunni Davíð Oddsson jarðsunginn í dag Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Flytur mál fyrir Hæstarétti Ríkisstjórnin ræðir neyðarbirgðir olíu Kristrún telur þurfa 70% stuðning við tillöguna 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Færð getur spillst víða í nótt Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Andlát: Þorkell Jóelsson Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Jón Ásgeir fær ekki meira greitt frá ríkinu Andlát: Felix Ólafsson Á annan tug ferðalanga fastir á heiðinni Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Bílar festust og fólk fær gistingu í þorpinu Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu

Share this article