Innlent | mbl | 15.4.2026 | 18:10 Nokkur fyrirtæki náð tugmilljarða virði Frá ársfundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu frá því í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Ísland er leiðandi á Norðurlöndum í fjölda fjártæknifyrirtækja á íbúa en 76 fjártæknifyrirtæki starfa hér á landi. Geirinn veitir 930 manns atvinnu og 55% tekna hans koma frá erlendum mörkuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu, SFF, en ársfundur samtakanna fór fram fyrr í dag þar sem skýrsla um fjártæknigeirann á Íslandi var kynnt. Skýrslan er unnin af fyrirtækinu Northstack fyrir Íslandsstofu og SFF. Frétt af mbl.is Beint: Kristrún og Daði ávarpa SFF-daginn Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka og formaður SFF, á fundinum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Velta á hvern starfsmann um 73 milljónir króna Í skýrslunni kemur m.a. fram að mikill meirihluti forsvarsmanna fyrirtækjanna vænti tekjuvaxtar, aukins vöruframboðs og innreiðar á nýja markaði á næstu tólf mánuðum. Þá er dregin upp mynd af öflugum og vaxandi geira sem hafi skapað sér sérstöðu hér á landi sem og á alþjóðavísu og kemur fram í skýrslunni að fjártæknifyrirtækin 76 dreifi sér yfir 10 svið og að hagnaður geirans hafi numið níu milljörðum króna árið 2024. Þá hafi velta á hvern starfsmann verið um 73 milljónir króna. Skýrslan bendir jafnframt á að Ísland skipar sér í efsta sæti á Norðurlöndum þegar kemur að fjölda fjártæknifyrirtækja á mann. Frétt af mbl.is Traust til viðskiptabankanna eykst verulega Daði Már Kristófersson, efnahags- og fjármálaráðherra, var þátttakandi á fundinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Nokkur fyrirtæki náð tugmilljarða virði „Niðurstöður könnunar Northstack meðal forsvarsmanna í fjártæknigeiranum, sem framkvæmd var í febrúar 2026, sýna einnig skýrar væntingar um áframhaldandi vöxt. Mikill meirihluti þátttakenda sagðist eiga von á tekjuvexti, auknu vöruframboði og innreið á nýja markaði á næstu tólf mánuðum. Þá komu einnig fram væntingar um raunsæja fjárfestingu í gervigreind, einkum með áherslu á innri hagkvæmni sem geti stutt við frekari þróun fyrirtækjanna. Þá hafa nokkur íslensk fjártæknifyrirtæki náð tugmilljarða virði. Í skýrslunni eru raktar markverðar fjárfestingar í íslenskum fjártæknifyrirtækjum undanfarin ár. Þar má nefna Lucinity, sem hefur sótt sér 23,1 milljón dala í tveimur fjárfestingarlotum, Meniga með 25,9 milljónir dala í tveimur lotum og indó með 15,5 milljónir dala í tveimur lotum. Jafnframt eru nefnd dæmi um alþjóðleg fyrirtækjakaup sem undirstrika traust á íslenskum lausnum, meðal annars kaup Rapyd á Valitor fyrir 100 milljónir dala árið 2021 og kaup LLCP á Creditinfo fyrir um 150 milljónir dala sama ár. Einnig voru Uniconta og LS Retail seld til alþjóðlegra framtakssjóða á síðasta ári,“ segir í tilkynningu SFF. Þá segir Northstack niðurstöðurnar styðja við þá mynd að íslensk fjártæknifyrirtæki hafi þegar byggt upp sterkt alþjóðlegt tengslanet samstarfsaðila og viðskiptavina. Sú staðreynd að yfir helmingur tekna geirans komi erlendis frá sýni að fyrirtækin séu ekki einungis að leysa verkefni fyrir lítinn heimamarkað heldur hafi einnig náð fótfestu á alþjóðlegum mörkuðum. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra fór með erindi á fundinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ísland sé raunhæfur tilraunamarkaður Í samantektinni er jafnframt fjallað um helstu forsendur þess að Ísland teljist heppilegur vettvangur fyrir þróun fjártækni. Þar er bent á að Ísland sé raunhæfur tilraunamarkaður þar sem smæðin geri fyrirtækjum kleift að ná útbreiðslu á skömmum tíma. Aðild að EES samningnum þýði jafnframt að lausnir séu þróaðar innan evrópsks regluverks. „Skýrslan bendir einnig á sterka stafræna innviði hér á landi; stafrænt greiðslukerfi milli banka hefur verið í notkun frá 1985, nær allir neytendur nota rafræn auðkenni og um 99% samskipta viðskiptavina við íslenska banka eru stafræn. Þá kemur fram að 48% Íslendinga hafi skipt um fjármálaþjónustu á síðustu fimm árum, samanborið við 25% að meðaltali í Evrópu, sem endurspeglar harða samkeppni og móttækilegan markað fyrir nýjar lausnir,“ segir í tilkynningunni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Laxastofn Elliðaánna við hestaheilsu ÍBV - Haukar, staðan er 10:9 Bilun stöðvar Herjólf tímabundið Nokkur fyrirtæki náð tugmilljarða virði Arsenal – Sporting kl. 19, bein lýsing Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Telja svigrúm til að lækka álögur á íbúa Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Laxastofn Elliðaánna við hestaheilsu ÍBV - Haukar, staðan er 10:9 Bilun stöðvar Herjólf tímabundið Nokkur fyrirtæki náð tugmilljarða virði Arsenal – Sporting kl. 19, bein lýsing Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Óljóst hver ber ábyrgð á áhættumati Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Sveitarstjórnar að ákveða um skólastarf Mest lesið Í gær Í vikunni Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn