Mikil aðalfundarhrina meðal skráðra félaga í Kauphöllinni hefur ríkt undanfarnar vikur þar sem hvert félagið á fætur öðru kynnir afkomu síðastliðins árs. Samanlagðar arðgreiðslur sem stjórnir félaga á aðalmarkaði hafa lagt til það sem af er ári nema tæplega 58 milljörðum króna. Til samanburðar námu samanlagðar arðgreiðslur félaga á aðalmarkaði tæplega 85 milljörðum króna á árinu 2025 vegna ársins 2024, og 51 milljarði króna á árinu 2024 vegna ársins 2023. Tvö félög eiga eftir að skila inn uppgjöri vegna ársins 2025 og þar með tilkynna um arðgreiðslur á árinu. Bera, móðurfélag Ölgerðarinnar, skilar inn uppgjöri 16. apríl og Hagar 29. apríl. Hagar greiddu 2,5 milljarða króna í arð til hluthafa á árinu 2025 vegna rekstrarársins 2024. Bera greiddi aftur á móti ekki út neinn arð í fyrra vegna rekstrarársins 2024. Ef gert er ráð fyrir því að félögin haldi svipuðu striki á þessu ári má reikna með að heildararðgreiðslur skráðra félaga á aðalmarkaði verði rúmleg 60 milljarðar króna á þessu ári. Í fyrra voru heildararðgreiðslurnar um 40% hærri. Þar munaði mest um rúmlega 22 milljarða arðgreiðslu Kviku banka til hluthafa sinna sem var að mestu tilkomin vegna sölunnar á tryggingafélaginu TM til Landsbankans. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .