Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Arðgreiðsluhlutfallið hæst hjá Eik

Read Full Article →

Mikil aðalfundahrina meðal skráðra félaga í Kauphöllinni hefur ríkt undanfarnar vikur þar sem hvert félagið á fætur öðru kynnir afkomu síðastliðins árs. Samanlagðar arðgreiðslur sem stjórnir félaga á aðalmarkaði hafa lagt til það sem af er ári nema tæplega 58 milljörðum króna. Til samanburðar námu samanlagðar arðgreiðslur félaga á aðalmarkaði tæplega 85 milljörðum króna á árinu 2025 vegna ársins 2024, og 51 milljarði króna á árinu 2024 vegna ársins 2023. Heildararðgreiðslur félaganna segja þó einungis hluta sögunnar, en fjárfestum er gjarnan annt um svokallað arðgreiðsluhlutfall (e. dividend yield), sem lýsir ávöxtun þeirra af hlutabréfafjárfestingu sinni í formi arðgreiðslna – reiknað sem arður á hlut í hlutfalli við verð hlutarins. Þegar tekið er mið af gengi bréfanna í lok árs 2025 er arðgreiðsluhlutfallið hæst hjá Eik, 8%. Þar á eftir kemur Skel fjárfestingafélag með arðgreiðsluhlutfall upp á 7,5%. Á eftir Eik og Skel kemur Arion banki með rúmlega 6% hlutfall, en Íslandsbanki fylgir þar skammt á eftir með 5,2%. Svo kemur Kaldalón með 3,5%, Reitir 3% og Brim 2,9%. Lægst eru arðgreiðsluhlutföllin hjá JBT Marel (0,3%), Hampiðjunni (0,4%) og Heimum (1,1%). Þá nemur hlutfallið 1,5% hjá Símanum, 1,6% hjá Eimskip, 1,7% hjá Síldarvinnslunni og 1,9% hjá Ísfélaginu. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article