Fjögur félög í kauphöllinni báru ábyrgð á um 70% af öllum arðgreiðslum og endurkaupum í fyrra. Jón Finnbogason framkvæmdastjóri Stefnis hvetur stjórnendur skráðra félaga til að huga að verðlagningu þegar kemur að endurkaupum. Endurkaup eigin bréfa eru orðin eitt helsta verkfæri skráðra félaga til að skila umframfé til eigenda og þar vegur bankageirinn þungt. Í bréfi sem Jón Finnbogason, framkvæmdastjóri Stefnis, sendi eigendum sjóða félagsins segir hann að þrátt fyrir mótvind á innlendum hlutabréfamarkaði hafi rekstur margra félaga gengið vel og fjármagni hafi verið skilað út með bæði endurkaupum og arði. Í bréfinu bendir Jón á að greiðslur skráðra félaga til hluthafa, með endurkaupum og arðgreiðslum, hafi numið samtals 118 milljörðum króna á árinu 2025, þar af 33 milljörðum skilað með endurkaupum og 85 milljörðum í arðgreiðslum. Þá bendir hann á að 68% af heildarfjárhæðinni komu frá fjórum félögum. Jón segir að aukinn skilningur og áhersla á endurkaup sé jákvæð þróun hjá félögum í kauphöllinni á Íslandi. Afkomu í framtíð er þá skipt á milli færri hluta í félaginu. Það eykur arðsemi þeirra eigenda sem eftir standa í félaginu. Hins vegar skiptir rétt verð miklu máli þegar félög ráðast í endurkaup. Samhliða bréfi til sjóðsfélaga birti Stefnir ársuppgjör. Í lok árs 2025 voru eignir í virkri stýringu hjá Stefni um 379 milljarðar króna sem var 43 milljörðum krónum meira en í upphafi árs, og nemur 12,8% hækkun á árinu. Hækkunin skýrist að mestu af innflæði í nýstofnaða sjóði ásamt ávöxtun á árinu. Áskrifendur geta lesið bréf Jóns til sjóðsfélaga ásamt umfjöllun um endurkaup og arðgreiðslur skráðra félaga hér.