Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skagi að hefja 750 milljóna endurkaup

Read Full Article →

Skagi, móðurfélag VÍS, Fossa og Íslenskra verðbréfa, tilkynnti í gærkvöldi um að stjórn félagsins hefði ákveðið að hefja framkvæmd endurkaupaáætlunar þar sem félagið mun kaupa eigin bréf fyrir allt að 750 milljónir króna. Endurkaup munu hefjast 2. mars næstkomandi og gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 5. júní 2026. Skagi fékk í október síðastliðnum samþykki frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands fyrir endurkaupum fyrir allt að 1.500 m.kr. Sjá einnig Sam­runa­viðræðum Ís­lands­banka og Skaga slitið Ákvörðun Skaga um að hefja endurkaup fylgir í kjölfar þess að samrunaviðræðum félagsins og Íslandsbanka var slitið á laugardaginn eftir að Íslandsbanki lagði fram tillögu sem fól í sér verulegar breytingar á gagngjaldi, samkvæmt tilkynningu Skaga. Stjórn Skaga sagði tillöguna „á engan hátt“ endurspegla virði Skaga í sameinuðu félagi. Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga, sagði í viðtali í Morgunblaðinu sem kom út í dag að félagið muni nú einbeita sér að innri vexti. Áfram verði skoðuð tækifæri til ytri vaxtar ef tækifæri gefast. Skagi birti ársuppgjör á miðvikudaginn í síðustu viku. Þar kom fram að félagið hafi hagnast um 1,9 milljarða króna á árinu 2025, samanborið við tæplega 2,3 milljarða króna árið áður. Arðsemi eigin fjár var 8,6%. Minni hagnað má einkum rekja til þess að fjárfestingartekjur drógust saman um þriðjung milli ára og námu tæplega 2,4 milljörðum króna. Sjá einnig Arðsemi undir markmiði Stjórn Skaga leggur til fyrir aðalfund að félagið greiði hluthöfum arð að fjárhæð 760 milljónir króna fyrir reikningsárið 2025, eða sem nemur um 0,3988 krónum á hlut að teknu tilliti til eigin bréfa.

Share this article