Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kvörtun um grænþvott leiddi til 1,5 milljóna sektar

Read Full Article →

Neytendastofa hefur sektað hvalaskoðunarfyrirtækið Norðursiglingar ehf. á Húsavík um 1.500.000 krónur vegna villandi markaðssetningar. Á vef Neytendastofu segir að með lagabrotum hafi Norðursiglingar raskað fjárhagslegum hagsmunum samkeppnisaðila. Málið á sér rætur að rekja til kvörtunar sem barst Neytendastofu frá Gentle Giants-Hvalaferðum í nóvember 2024 þar sem fyrirtækið krafðist þess að Neytendastofa bannaði Norðursiglingum að gefa í skyn að starfsemi þeirra væri umhverfisvænni en hjá öðrum. Norðursigling hafði birt auglýsingar undir yfirskriftinni „Carbon Neutral“, „Eco-Friendly“, og „Silent Whale Watching“. „Auglýsingar og kynningarefni Norðursiglingar hafi á sér villandi yfirbragð enda sé þar beint og óbeint gefið sterklega í skyn að Norðursigling og starfsemi á vegum félagsins sé umhverfisvænni en samkeppnisaðilar. Þannig hafi Norðursigling m.a. notast við laufblað í auglýsingum sínum og græna liti sem vísi augljóslega til þess að um umhverfisvæn fyrirtæki og starfsemi sé að ræða.“ Sjá einnig Neytendastofa sektar NineKids og Errea Gentle Giants benti einnig á að bátarnir sem Norðursigling noti í hvalaskoðunarferðum sínum gangi fyrir olíu og að það væri heldur ekki rétt að hvalaskoðun Norðursiglingar væri hljóðlaus, heldur gæfu bátarnir frá sér hljóð líkt og aðrir. „Norðursigling hefur farið mikinn í að vekja athygli á einum af bátum sínum sem hefur haft rafmótor um borð. Norðursigling hefur farið fáar ferðir þar sem báturinn notast við vélina og raunar sé algengt að neytendur bóki hvalaskoðunarferð hjá Norðursiglingu með bátnum en þegar á reynir reynist báturinn bilaður og olíubátur nýttur í staðinn.“ Í þeim fáu ferðum sem rafmagnsbáturinn hafi verið notaður segir Gentle Giants að oftar en ekki hafi Norðursigling þurft að keyra gamla dísilvél til þess að hlaða inn á rafgeyma bátsins í siglingum á Skjálfanda líkt og sjá megi í athugasemdum viðskiptavina. „Umræddur bátur er einungis einn af tíu bátum Norðursiglingar og eru allir hinir knúnir af gömlum dísilmótorum. Þrátt fyrir það gefi auglýsingar Norðursiglingar það til kynna að þjónusta félagsins sé „carbon neutral“, „eco-friendly“ og „silent operator“. Auglýsingarnar feli þar af leiðandi í sér rangar upplýsingar og villandi af ásetningi.“ Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu að Norðursigling hefði brotið gegn 5. gr., 4. mgr. 6. gr., 1. mgr. 8. gr., 9. gr., 14. gr. og a. lið 2. mgr. 15. gr. laga nr. 57/2005. Jafnframt bannaði Neytendastofa Norðursiglingu að nota myndmerki og textann „Carbon Neutral“.

Share this article