Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hrefnukvóti Norðmanna 1.641 dýr

Read Full Article →

Norska sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út kvóta fyrir hrefnuveiðar á yfirstandandi ári. Alls má veiða 1.641 hrefnu á árinu sem er aukning um 235 dýr frá árinu 2025. Ráðgjöf um veiðar á langreyð og hrefnu við Ísland verður kynnt á næstu vikum. Í frétt frá norska sjávarútvegsráðuneytinu segir að hvalveiðar Norðmanna séu sjálfbærar og lúti ströngum reglum. Hrefnustofninn sé í mjög góðu ástandi. „Norðmenn styðjast við skilvirkar veiðiaðferðir sem taka mið af dýravelferð. Auk þess hefur neysla hvals á bolfiski áhrif á vistkerfið. Hvalveiðar stuðla þannig að jafnvægi í hafinu. Til að ná sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu þjóðanna verðum við einnig sem þjóð að borða meira af sjávarfangi og hvalur er hollur og staðbundinn valkostur hvað það varðar,“ segir Marianne Sivertsen Næss sjávarútvegsráðherra. Sjálfbær veiði Fram kemur í frétt ráðuneytisins að í Norður-Atlantshafi séu yfir 100 þúsund hrefnur. Kvótinn nú verði 1.641 dýr en var 1.406 dýr á síðasta ári. Aukninguna nú megi rekja til ónýtts kvóta frá síðasta ári. Í fyrra stunduðu tíu skip hrefnuveiðar og aflinn var 429 dýr. Þetta voru færri skip en áður hafa stundað veiðarnar en aflinn var meiri en á árinu 2024. Kvótinn er ákvarðaður út frá reiknilíkönum frá vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins, IWC. Líkönin eiga að tryggja sjálfbæra stjórnun hrefnustofnsins. Á Wikipedia segir að í norrænum fornritum eru heimildir um hvalveiðar allt frá árinu 800. Á 11. öld var algengt að veiða hrefnur með skutli. Í Vestur-Noregi tíðkaðist að reka hrefnur inn í firði og drepa þær með eiturörvum. Hrefnur voru ekki veiddar við Ísland fyrr en á 20. öld. Hrefnuveiðar voru stundaðar á Íslandi á smábátum á árunum 1914 til 1985. Hrefnuveiðar voru fyrst stundaðar á Ísafjarðardjúpi en síðar einnig frá Breiðafirði, Húnaflóa, Eyjafirði og Austfjörðum. Veiðarnar jukust verulega eftir 1960 og veidd voru um 200 dýr á ári á árunum 1975-1985. Norskir smábátar stunduðu einnig hrefnuveiðar við Ísland á árunum 1948 til 1975. ‎Engar hrefnuveiðar hafa verið við Ísland árin 2022 til 2024 og einungis ein hrefna veiddist árið 2021. Stofninn er talinn vera um 44 þúsund dýr. Hafrannsóknastofnun lagði til að árlegar veiðar á hrefnu árin 2015 til 2025 næmu að hámarki 217 dýrum. Ráðgjöf stofnunarinnar um veiðar á langreyði og hrefnu á þessu ári verður kynnt síðar í vor.

Share this article