Hafrannsóknastofnun leggur til í samræmi við varúðarsjónarmið að humarveiðar verði ekki heimilaðar árið 2026. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun sem segist hins vegar, vegna ósamræmis í vísitölu humarholna og upplýsinga úr togleiðöngrum, leggja til að könnunarveiðar verði stundaðar til að afla upplýsinga um aflabrögð og stærðarsamsetningu stofnsins. Hár þéttleiki árið 2025 við Suðausturland „Hár þéttleiki humarholna mældist í humarholutalningu árið 2025 við Suðausturland, í Skeiðarár-, Breiðarmerkur- Hornfjarðar- og Lónsdjúpi. Lægri þéttleika var að finna á öðrum svæðum, en aukningu er þó að sjá alls staðar frá árinu 2021 þegar lágmarki var víðast hvar náð,“ segir á vef Hafrannsóknastofnunar. Ráðleggja 46 þúsund tonna nýtingu á stórþara Þá hefur Hafrannsóknastofnun metið stofnstærð stórþara úti fyrir Norðurland. Ráðleggur stofnunin heildarnýtingu upp á rúm 46.000 tonn á átta nýtingarsvæðum, sem sé um 2 prósent af áætluðum lífmassa stórþara á þeim svæðum sem nýting er ráðlögð. Mælingar á útbreiðslu og lífmassa stórþara við Norðurland hafi staðið yfir á árabilinu 2019 – 2023. Átta svæði undanskilin fyrir seli og fugla. „Útbreiðsla var mæld með bergmálsmæli en lífmassi með um það bil 65 uppskerumælingum á 10 og 15 metra dýpi og var framkvæmd af köfurum. Unnið hefur verið að úrvinnslu og túlkun gagna sem eru nú birt sem ráðgjöf. Við ákvörðun á nýtingarmagni og nýtingarsvæðum voru átta svæði undanskilin nýtingu meðal annars vegna mikilvægi þeirra fyrir seli og fugla. Þessi svæði nýtast einnig til samanburðar við nýtingarsvæðin þegar áhrif nýtingar stórþara er metin,“ segir Hafrannsóknastofnun. Greiðan taki nær eingöngu stærstu og elstu plönturna „Nú þegar hefur farið fram rannsókn á áhrifum þaragreiðunnar á þarastofninn en niðurstöður sýna að greiðan tekur nær eingöngu stærstu og elstu plönturnar og skilur minni plöntur eftir sem vaxa hratt upp eftir skurðinn,“ segir einnig í tilkynningu Hafrannsóknastofnunar. Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um humar má sjá hér og nýtingu á stórþara við Norðurland má sjá hér.