Novator ehf., fjárfestingafélag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, er komið í slitameðferð samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu. Samkvæmt síðasta birta ársreikningi, fyrir árið 2024, nam eigið fé félagsins 628 milljónum króna, en stór hluti eigna var bundinn í lánum, skuldabréfum og kröfum á tengda aðila. Ályktunarbær hluthafafundur Novator samþykkti um miðjan desember að slíta félaginu. Jónas Rafn Tómasson og Kristín Sif Magnúsdóttir Laxdal, lögmenn hjá KPMG Law, voru kjörin í skilanefnd og hefur lánardrottnum verið veittur frestur til að lýsa kröfum sínum. Hlutafé lækkað verulega árið 2023 Samkvæmt síðasta ársreikningi félagsins fyrir árið 2024 voru enn umtalsverðar eignir í því en fremur afmörkuð starfsemi. Tap Novator nam 157,2 milljónum króna á árinu 2024, samanborið við 168,2 milljóna tap árið áður. Bókfært eigið fé nam 628 milljónum króna í árslok sem var lækkun úr 785 milljónum árið áður. Tveir starfsmenn störfuðu hjá félaginu á árinu og námu laun og launatengd gjöld 43 milljónum króna. Félagið var að fullu í eigu Reliquum S.à r.l. í Lúxemborg samkvæmt ársreikningnum, en um er að ræða eignarhaldsfélag Björgólfs Thors. Hlutafé Novator nam 50 milljónum króna og var óbreytt á árinu. Árið áður hafði hins vegar verið ráðist í lækkun hlutafjár og greiðslu til hluthafa sem leiddi til leiðréttingar á eigin fé í ársbyrjun 2024. Í skýringum um eigið fé kemur jafnframt fram að árið 2023 hafi hlutafé félagsins verið lækkað um 216 milljónir króna að nafnverði, með greiðslu til hluthafa að fjárhæð 2,8 milljarða króna. Vaxtalaust lán til móðurfélags Efnahagsreikningurinn sýnir að eignir félagsins námu alls 648,5 milljónum króna í árslok 2024. Fastafjármunir námu 149,5 milljónum króna og þar undir féllu rekstrarfjármunir að bókfærðu virði 41 milljón, eignarhlutir í öðrum félögum að fjárhæð 38,6 milljónir og skuldabréf að fjárhæð 69,9 milljónir króna. Björgólfur Thor við merki Novator. © Aðsend mynd (AÐSEND) Veltufjármunir námu 499 milljónum króna. Þar vegur langþyngst krafa á tengdan aðila, 366,8 milljónir króna, auk skammtímaskuldabréfa að fjárhæð 128,2 milljónir. Handbært fé í árslok var hins vegar aðeins 3,8 milljónir króna. Í skýringum með reikningnum kemur fram að Novator hafi lánað móðurfélagi sínu, Reliqium S.à r.l. í Lúxemborg, verulegar fjárhæðir. Í ársbyrjun nam lánið 402 milljónum króna og á árinu bættust við 21 milljón. Eftirstöðvar kröfunnar námu 366 milljónum króna í árslok og lánið bar ekki vexti. Samkvæmt ársreikningnum höfðu fimm aðilar fengið lán frá Novator í árslok 2024. Af þeim höfðu tveir aðilar fengið lán til lengri tíma en eins árs og námu eftirstöðvar þeirra ásamt áföllnum vöxtum 70 milljónum króna. Eftirstöðvar lána til annarra aðila ásamt áföllnum vöxtum námu 128 milljónum króna og voru þau að gjalddaga komin á árinu 2025. Rekstrartekjur félagsins í hefðbundnum skilningi voru takmarkaðar. Ársreikningurinn dregur þannig upp mynd af félagi sem var ekki skuldsett í stórum stíl, heldur fjárfestingar- og lánsfélagi með jákvætt eigið fé, takmarkaða daglega starfsemi og eignir sem að stórum hluta voru bundnar í kröfum innan samstæðu og í skuldabréfum. Félag sem skrifaði viðskiptasögu Íslands Slitin marka kaflaskil hjá félagi sem hefur verið áberandi í íslensku viðskiptalífi í áratugi. Eins og Viðskiptablaðið hefur rakið í gegnum árin var Novator um langt skeið eitt af umsvifameiri fjárfestingafélögum Björgólfs Thors Björgólfssonar. Félagið kom að stærstu yfirtöku íslensks viðskiptalífs þegar það tryggði sér árið 2010 samþykki yfir 94% hluthafa í samheitalyfjafyrirtækinu Actavis og lauk þar með yfirtökunni. Með yfirtökutilboðinu var Actavis metið á 286 milljarða króna á verðlagi þess tíma og afskráning félagsins var sögð sú langstærsta í sögu Kauphallar Íslands. Sjá einnig Yfirgefur símabransann Novator tengdist einnig Nova um langt árabil. Árið 2015 nam velta Novator 6,4 milljörðum króna og eignir rúmlega 6,1 milljarði króna, en meðal innlendra dótturfélaga þess voru þá Nova ehf. og Novator F11 ehf. Árið 2016 kom fram að Björgólfur Thor ætti tæplega 94% hlut í Nova í gegnum Novator ehf. og Novator Teleco Finland og að söluferli á hlutnum væri hafið. Björgólfur seldi Nova til bandaríska eignastýringarfyrirtækisins Pt Capital Advisors sama ár fyrir um 16 milljarða króna. Auk þess kom Novator að stórum erlendum fjárfestingum. Meðal annars fjárfesti félagið í uppbyggingu þriðju kynslóðar farsíma í Póllandi í gegnum Netia Mobile, þar sem Novator átti 70% hlut og tengdir fjárfestar komu einnig að verkefninu. Sjá einnig „Ég þarf að aðlagast breyttum heimi“ Slit Novator marka því kaflaskil í sögu félags sem um árabil kom að stórum yfirtökum, fjarskiptafjárfestingum og umsvifamiklum eignum hér á landi og erlendis. Síðasti birti ársreikningurinn sýnir þó allt annars konar félag en það sem áður var: tiltölulega lítið fjárfestinga- og lánsfélag með afmarkaðri starfsemi, jákvætt eigið fé og eignir sem að verulegu leyti voru bundnar innan samstæðu. Sjá einnig Björgólfur áfram eini Íslendingurinn á lista Forbes