Silfurberg ehf., fjárfestingafélag í eigu hjónanna Friðriks Steins Kristjánssonar og Ingibjargar Jónsdóttur, hagnaðist um 373 milljónir króna árið 2024 en árið áður var 62 milljóna króna tap af rekstrinum. Tekjur félagsins námu 121 milljón en rekstrartap nam 20 milljónum, samanborið við 93 milljóna rekstrartap árið 2023. Fjármunatekjur námu aftur á móti 505 milljónum króna, samanborið við 248 milljónir árið áður. Þar af námu vaxtatekjur og virðisbreyting sjóða 256 milljónum, arður af hlutabréfaeign nam 72 milljónum og innleystur hagnaður af rafmyntum nam 177 milljónum. Fjármunagjöld námu 24 milljónum, samanborið við 210 milljónir árið 2023. Hlutdeild í afkomu dótturfélaga var neikvæð um 46 milljónir en Silfurberg er móðurfélag Lyfjavers. Eignir félagsins voru í lok árs 2024 bókfærðar á 11.699 milljónir króna og var eiginfjárhlutfall 98,3%. Félagið einblínir á fjárfestingar á sviði heilbrigðismála, lyfjaiðnaðar, líftækni og lífvísinda almennt. Fjárfestingaverðbréf námu 5.636 milljónum og skiptast í sprota, óskráð hlutabréf og skráð hlutabréf. Þegar kemur að erlendri eign var virði eigna í sprotum 999 milljónir, virði óskráðra hlutabréfa var 2.424 milljónir og virði skráðra hlutabréfa 1.130 milljónir. Hvað innlenda eign varðar var virði eigna í sprotum 671 milljón, virði óskráðra hlutabréfa 383 milljónir og virði skráðra hlutabréfa 28 milljónir. Markaðsverðbréf námu 2.830 milljónum króna og skiptast í hlutabréfasjóði, hrávörur og peningamarkaðs- og skuldabréfasjóði. Eign í hlutabréfasjóðum nam 1.151 milljón, virði hrávara var 1.551 milljón og eign í peningamarkaðs- og skuldabréfum nam 15 milljónum. Bókfært verð 91,29% eignarhlutar í Lyfjaveri ehf. var 355 milljónir króna í lok árs. Stjórn Silfurbergs leggur til að 450 milljónir verði greiddar í arð.