Margrét Tryggvadóttir, sem lét af störfum sem forstjóri Nova í haust, keypti hlutabréf í fjarskiptafélaginu fyrir ríflega hundrað milljónir króna og styrkti þar með stöðu sína sem stærsti einstaki hluthafi félagsins. M&M Partners ehf., félag Margrétar og eiginmanns hennar Magnúsar Sigurjónssonar, bætti við sig 24,7 milljónum hlutum í Nova í febrúar, samkvæmt breytingum á lista yfir stærstu hluthafa félagsins. Miðað við meðalgengi hlutabréfa Nova í mánuðinum má ætla að kaupverðið hafi verið í kringum 108 milljónir króna. M&M Partners átti 105 milljónir hluta, eða um 2,96% eignarhlut, í lok febrúar sem eru um 445 milljónir króna að markaðsvirði. Sjá einnig Margrét hættir senn sem forstjóri Nova Margrét lét af störfum sem forstjóri Nova síðasta haust, en hún hafði þá verið í lykilhlutverki frá stofnun fjarskiptafélagsins og gegnt stöðu forstjóra frá árinu 2018. Tilkynnt var í maí 2025 að hún hefði óskað eftir að láta af störfum. Tekið var fram að hún myndi áfram sinna ráðgjöf fyrir félagið eftir starfslok. Margrét, sem er stærsti einstaki hluthafi Nova, sagði í færslu á Linkedin á þeim tíma að hún hygðist fylgja félaginu áfram sem virkur hluthafi. Nova birti ársuppgjör þann 26. febrúar síðastliðinn. Félagið hagnaðist um 783 milljónir króna, samanborið við 807 milljónir árið áður. Í afkomutilkynningu Nova kom fram að félagið stefni á að styrkja Nova klúbbinn frekar sem eignarhaldsfélag með aðgreindar tekjustoðir á sviði þjónustu, tækni og innviða. Félagið tilkynnti þann 20. febrúar um kaup á Ofar hf. af Skyggni Eignarhaldsfélagi í 4,4 milljarða króna viðskiptum. Sjá einnig Nova hyggst sækja fram í nýjum geirum Sylvía Kristín Ólafsdóttir tók formlega við stöðu forstjóri Nova þann 1. október síðastliðinn. Hún kom til félagsins frá Icelandair þar sem hún hafði starfað sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Við það tilefni sagði Margrét að félagið væri á frábærum stað til að takast á við nýjar áskoranir. „Nú fer ég af dansgólfinu og fylgist með af hliðarlínunni, Sylvía tekur við diskókúlunni og ég trúi að framtíðin feli í sér áframhaldandi gleði og enn stærri sigra.“ Sylvía Kristín Ólafsdóttir og Margrét Tryggvadóttir við forstjóraskiptin í haust. © Aðsend mynd (AÐSEND) Stærstu hluthafar Nova í lok febrúar Hluthafi Eignarhlutur Í % Birta 429.219.059 12,08 LSR A-deild 322.744.159 9,08 Stapi 298.550.236 8,40 Almenni-Lífsverk 211.659.497 5,96 Festa 206.492.403 5,81 LIVE 181.076.759 5,10 Landsbréf - Úrvalsbréf 179.202.548 5,04 Gildi - lífeyrissjóður 157.930.000 4,44 Nova klúbburinn hf. 106.500.000 3,00 M&M Partners ehf. 105.135.131 2,96 Sjóvá 101.068.772 2,84 Landsbréf - Öndvegisbréf 80.600.842 2,27 Íslandsbanki hf. 65.225.854 1,84 Landsbréf - Hekla 64.394.286 1,81 LSR B-deild 52.250.000 1,47 IS EQUUS Hlutabréf 52.232.281 1,47 IS Hlutabréfasjóðurinn 50.698.230 1,43 Landsbankinn hf. 44.316.908 1,25 Íslenski lífeyrissj-Lífsbraut 1 42.106.401 1,18 Kvika - Innlend hlutabréf 41.462.209 1,17