- What: Nova-klúbburinn hf., the parent company of telecommunications company Nova, has signed an agreement to acquire Ofar hf.
- Impact: The acquisition aims to strengthen Nova's position in the corporate market and expand its product offerings.
Nova-klúbburinn hf. móðurfélag fjarskiptafélagsins Nova, hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Ofar hf. Heildarvirði kaupanna nemur 4,4 milljörðum króna. Í fréttatilkynningu segir að kaupin séu liður í markvissri vaxtarstefnu Nova-klúbbsins og sé þeim ætlað að styrkja stöðu félagsins á fyrirtækjamarkaði. Þar segir jafnframt að Nova og Ofar verði rekin í sitt hvoru lagi, hvort undir sínu vörumerki. Þá liggi tækifæri breytinganna meðal annars í auknu vöruframboði og krosssölu í ljósi ólíkra markhópa félaganna tveggja. Ofar er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði tæknibúnaðar og lausna. Heildartekjur fyrirtækisins á árinu 2025 voru um 7,8 milljarðar króna.