Nova Klúbburinn, móðurfélag Nova hf., undirbýr stofnun nýs lággjaldafélags á fjarskiptamarkaði sem byggt er á gervigreind frá fyrsta degi. Nova segir að þetta skref marki þáttaskil á íslenskum fjarskiptamarkaði. „Stofnun félagsins mun marka þáttaskil á íslenskum fjarskiptamarkaði og án efa verða fyrirmynd annarra fyrirtækja varðandi uppbyggingu,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, í afkomutilkynningu félagsins. „Að baki félaginu stendur fámennur og öflugur hópur sem sýnir svart á hvítu hvernig gervigreind getur umbylt rekstrarlíkaninu í fjarskiptum. Þetta eru skýr skilaboð til markaðarins um að Nova ætli að leiða þróunina á markaði hér eftir sem hingað til.“ Hún segir félagið byggja á nýrri heildsöluvöru sem Nova hafi þróað. Sú lausn sé opin fyrirtækjum á Íslandi sem vilja bjóða fjarskiptaþjónustu undir eigin vörumerki. Þetta skapi Nova Klúbbnum nýja tekjustoð og stuðli að bættri nýtingu 5G-innviða félagsins. „Með þessu er Nova Klúbburinn að endurskilgreina íslenskan fjarskiptamarkað og hafa mótandi áhrif á þróun hans til framtíðar. Við trúum því einfaldlega að besta leiðin til að verja sterka stöðu sé að vera fyrst til að endurskilgreina hana,“ segir Sylvía Kristín. Sylvía Kristín, sem tók við sem forstjóri Nova Klúbbsins síðasta haust, segir félagið vera á skýrri þroska- og vaxtarvegferð. Nýlega tilkynnti félagið um kaup á Ofar frá Skyggni í 4,4 milljarða króna viðskiptum. Sjá einnig Nova kaupir Ofar í 4,4 milljarða viðskiptum Þá tilkynnti félagið í lok mars um áform um stofnun nýs hátæknifélags með Rafal. Umrætt félag muni sérhæfa sig í IoT-lausnum sem Sylvía Kristín segir að muni opna nýjar dyr til stórnotenda, gagnavera og inn á opinbera markaðinn. „Við sjáum tækifæri í samspili fjarskipta, tækni og innviða í heimi sem hreyfist hratt, væntingar viðskiptavina eru miklar og breytingar örar.“ Sjá einnig Nova og Rafal munu stofna sameiginlegt félag Nova birti árshlutareikning eftir lokun Kauphallarinnar í dag. Samstæðan hagnaðist um 109 milljónir króna á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við 167 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Velta félagsins dróst saman um 2,8% milli ára og nam 3,2 milljörðum króna á fjórðungnum. EBITDA-hagnaður félagsins dróst saman úr 989 milljónum í 649 milljónir milli ára. Eignir samstæðunnar voru bókfærðar á 23,4 milljarða króna í lok mars og eigið fé var um 9,6 milljarðar.