Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lággjaldafélag Nova hefur starfsemi í dag

Read Full Article →

Nýtt farsímafélag, Kosmos, hefur formlega starfsemi í dag og markar tímamót á íslenskum fjarskiptamarkaði. Kosmos er í eigu Nova Klúbbsins, móðurfélags Nova, og nýtir fjarskiptainnviði Nova hér á landi en utan landsteinana er byggt á samningi við alþjóða fjarskiptarisann Orange. Með lítilli yfirbyggingu, hagnýtingu gervigreindar og alsjálfvirkri þjónustu býðst viðskiptavinum nú hagstæðasta farsíma- og netþjónusta landsins, besta verðið á Netinu erlendis og verðtrygging í 2 ár. Kosmos er jafnframt fyrsta farsímafélagið á Íslandi sem byggir þjónustu sína eingöngu á 5G tækni og rafrænum símkortum (eSIM). Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. „Við sameinum lágan rekstrarkostnað og nýjustu tækni til að bjóða einfaldari og hagkvæmari þjónustu. Með því að byggja lausnir okkar á forsendum gervigreindar frá fyrsta degi getum við bæði lækkað verð og bætt þjónustu,“ segir Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Kosmos. „Með eingöngu stafræna þjónustu, þráðlausar 5G tengingar og rafræn símkort, höfum við tekið út allan óþarfa án þess að skerða gæði þjónustunnar.“ í fréttatilkynningu segir að þjónustuframboð Kosmos sé einfalt og gagnsætt. Helsta áskriftaleið félagsins sé ótakmarkað heimanet og farsími á 8.990 krónur á mánuði, með möguleika á að bæta við fleiri farsímum á lægra verði. Þá séu einnig í boði ódýrar farsímaáskriftir fyrir þá sem þurfa ekki heimanet. Viðskiptavinir Kosmos njóti verðtryggingar í tvö ár frá kaupdegi. Áskriftarverð þeirra hækki því ekki, óháð breytingum á gjaldskrá. Lækki áskriftarverð njóti viðskiptavinir þess hinsvegar strax. Þá bjóðist viðskiptavinum að greiða áskrift fyrirfram til eins árs og fá þannig 25% aukaafslátt. „Þetta er ný nálgun í anda netáskrifta eins og hjá Apple, Spotify, Disney og fleiri aðilum,“ segir Sverrir. „Viðskiptavinir Kosmos geta þannig sparað enn meira en eru þó aldrei bundnir okkur.“ Sjá einnig Nova stofnar lág­gjalda­félag á fjar­skipta­markaði „Kosmos leggur áherslu á skýra og gagnsæja verðlagningu erlendis. Innan Evrópu er viðskiptavinir á heimavelli og þar gilda hefðbundnar reglur um notkun, en utan Evrópu geta viðskiptavinir nú keypt ótakmarkað gagnamagn eftir löndum eða svæðum á föstu verði fyrir þann dagafjölda sem hentar hverju sinni,“ segir í fréttatilkynningu. „Í dag stígur Nova enn eitt djarft skref með stofnun Kosmos, nýs dótturfélags Nova Klúbbsins. Með tilkomu Kosmos erum við að mæta eftirspurn eftir einfaldari og ódýrari fjarskiptaþjónustu, á sama tíma og við aukum nýtingu innviða. Kosmos er byggt frá grunni sem lággjaldafélag sem nýtir eSIM, 5G-net og gervigreind til að bjóða einfalda og hagkvæma þjónustu,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins. „Félagið er rekið af litlum og öflugum hópi sem sýnir svart á hvítu hvernig gervigreind getur umbylt rekstrarlíkani í fjarskiptum. Með Kosmos erum við meðvitað að ögra okkur sjálfum og skapa beina samkeppni við Nova á einstaklingsmarkaði. Við trúum því einfaldlega að besta leiðin til að verja sterka stöðu sé að vera fyrst til að endurskilgreina hana. Á sama tíma hefur Nova búið til einfalda heildsöluvöru sem að aðrir aðilar geta nýtt sér. Þetta er leið til að nýta enn betur fjarskiptainnviði Nova.“ Fyrsta gervigreindardrifna fyrirtækið Kosmos er fyrsta íslenska „AI First“ fyrirtækið á markaði að sögn Sverris. Hagnýting gervigreindar er í lykilhlutverki í allri starfsemi félagsins frá upphafi, allt frá sölu og ráðgjöf til þjónustu og eftirfylgni við viðskiptavini. Viðskiptavinir geta átt í samskiptum við Kosmos, snjallasta gervigreindarfulltrúa landsins í gegnum kosmos.is og smáforrit þar sem öll afgreiðsla og aðstoð er veitt í rauntíma. Skráning nýrra viðskiptavina er hafin á kosmos.is og er fyrsti mánuðurinn frír. Í fréttatilkynningunni segir loks að Kosmos leggi áherslu á nýja nálgun í fjarskiptaþjónustu sem felist í eftirfarandi: Lægsta verðið í net- og farsímaþjónustu á Íslandi Besta verðið á Netinu í útlöndum, skýr og gagnsæ gjaldskrá Verðtrygging í 2 ár – engin falin gjöld eða skyndilegar hækkanir Rafrænt símkort (eSIM) eingöngu – engin plastkort, engin bið Sjálfsafgreiðsla og gervigreind – framúrskarandi þjónustustig Þráðlaus 5G tenging – öflugt heimanet og gott samband um allt land

Share this article