Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nova og Rafal munu stofna sameiginlegt félag

Read Full Article →

Nova og Rafal stefna að því að stofna nýtt félag sem mun sameina reynslu Rafal í stafrænni þróun og fjarskiptakerfi Nova. Fyrirtækin hafa þegar undirritað viljayfirlýsingu um stofnun nýs sameiginlegs félags sem mun sérhæfa sig í IoT-lausnum. Með fyrirvara um endanlegan frágang samninga verður félagið byggt á fjarskiptakerfi Nova og 40 ára reynslu Rafal í hönnun, smíði og rekstri raforku- og tæknilegra innviða. Samkvæmt tilkynningu mun Nova fara með meirihlutaeign í nýju félagi. Félaginu er ætlað að hraða þróun á markaði hlutanetslausna á Íslandi, en markaður fyrir IoT-lausnir á Norðurlöndum hefur farið vaxandi á undanförnum árum. Sjá einnig Átta sækjast eftir fimm sætum í stjórn Nova „Nova og Rafal hafa verið að vinna að ýmsum IoT lausnum fyrir fyrirtæki síðustu misseri og eru því vel kunnug hvoru öðru og þeim tækifærum sem eru á þessum markaði í dag. Með því að sameina krafta Nova og Rafal með þessum hætti fæst enn meiri slagkraftur á þessu sviði,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova klúbbsins.

Share this article