Átta einstaklingar sækjast eftir fimm sætum í stjórn Nova. Stjórnarkjör fer fram á aðalfundi fjarskiptafélagsins 26. mars næstkomandi. Tilnefningarnefnd félagsins leggur til að allir sitjandi stjórnarmenn félagsins - Hrund Rudolfsdóttir, Jóhannes Þorsteinsson, Jón Óttar Birgisson, Sigríður Olgeirsdóttir og Steinunn Hlíf Sigurðardóttir - verði endurkjörnir. „Það er niðurstaða tilnefningarnefndar Nova að stjórn félagsins, með þeim einstaklingum sem tilnefndir eru, muni hafa fjölbreytta reynslu og þekkingu til að styðja við áframhaldandi vöxt, samkeppnishæfni og stefnu Nova í síbreytilegu markaðsumhverfi,“ segir í skýrslu tilnefningarnefndar. Sjá einnig Nova hyggst sækja fram í nýjum geirum 18 sýndu áhuga Alls bárust 13 framboð til tilnefningarnefndar Nova en auk þess gáfu allir sitjandi stjórnarmenn kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Samtals voru framboðin því 18 talsins. Eftir yfirferð á þeim framboðum sem bárust ákvað tilnefningarnefndin að bjóða sex frambjóðendum, sem ekki áttu þegar sæti í stjórn, í viðtöl til nefndarinnar. Þrír þeirra, sem nefndin segir að hafi allir komið sterklega til greina, ákváðu að halda framboði sínu til streitu. „Í samtölum við hluthafa kom skýrt fram vilji þeirra til að sjá fleiri framboð en þau fimm sem nefndinni er skylt að tilnefna.“ Eftirfarandi þrír einstaklingar, sem ekki eru tilnefndir, gefa kost á sér til stjórnarsetu hjá Nova: Erla Ósk Ásgeirsdóttir - fyrrverandi framkvæmdastjóri sjálfbærni og menningar hjá Símanum. Þar áður var hún framkvæmdastjóri hjá The Reykjavík Edition lúxushótelinu þar sem hún leiddi opnun hótelsins og uppbyggingu starfseminnar. Þar áður var hún forstöðumaður mannauðs-, gæða- og umhverfismála hjá Icelandair Hotels í sjö ár. Erla Ósk situr í stjórn Bláa Lónsins og er stjórnarformaður Festa – miðstöðvar um sjálfbærni og stjórnarformaður Leiðtogaauðs. Haukur Skúlason – einn stofnenda og fyrrverandi framkvæmdastjóri sparisjóðsins Indó. Áður var hann fjármálastjóri fjártæknifyrirtækisins Móberg ehf í þrjú ár en lengst af starfaði hann hjá Íslandsbanka og tengdum félögum í rúman áratug, m.a. sem fjárfestingastjóri, forstöðumaður í greiningu og stefnumörkum, forstöðumaður framtaksfjárfestinga og forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Íslandssjóðum. Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir – hefur starfað undanfarin fjögur sem markaðsstjóri hjá Indó sparisjóði þar sem hún hefur leitt uppbyggingu vörumerkis, mótun markaðsstefnu og markaðssetningu nýrra þjónustulausna í tengslum við innreið fyrirtækisins á íslenskan bankamarkað. Áður starfaði Hjördís hjá Krónunni, meðal annars sem forstöðumaður markaðsmála og sjálfbærni og áður sem markaðsstjóri. Í tilnefningarnefnd Nova sitja Thelma Kristín Kvaran og Helgi Bjarnason. Thelma Kristín er formaður nefndarinnar.