Nova hagnaðist um 783 milljónir króna á árinu 2025, samanborið við 807 milljóna króna hagnað árið áður. Fjarskiptafélagið birti ársuppgjör eftir lokun Kauphallarinnar í dag. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður að fjárhæð 350 milljónir króna í ár. Nóva Klúbburinn verði eignarhaldsfélag Í afkomutilkynningu er fjallað um tækifæri með kaupum á Ofar sem tilkynnt var um í síðustu viku. Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, segir félagið sjá tækifæri til krossölu hjá Nova á fyrirtækjamarkaði og Ofar á einstaklingsmarkaði. Sjá einnig Nova kaupir Ofar í 4,4 milljarða viðskiptum Auk þess hafi félagið fjölgað samstarfsaðilum með það að markmiði að kross-selja fjarskiptaþjónustu og hýsingarþjónustu. „Helstu tækifæri Klúbbsins til þess að vaxa er að auka virði til viðskiptavina, markaðsókn í nýja geira og nýta innviði og tækni til að auka framlegð. Á árinu verður unnið að því að styrkja Nova Klúbbinn enn frerkar sem eignarhaldsfélag með aðgreindar tekjustoðir á sviði þjónustu, tækni og innviða,“ segir Sylvía Kristín sem hóf störf sem forstjóri Nova í haust. Ætla að eiga ráðandi hluti í nýju innviðafélagi Fjallað er um nýtt innviðafélag Nova, Nova Innviði, sem tilkynnt var um fyrir ári síðan. Markmiðið með félaginu sé að aðgreina betur innviða- og þjónusturekstur félagsins. Sjá einnig Nova stofnar nýtt innviðafélag Nova segir langstímastefnu félagsins að eiga eigin innviði „sem er skýr aðgreining frá samkeppninni“. Með því tryggi félagið stærðarhagkvæmni, betri nýtingu og traustar tekjustoðir. Stefnt sé því að eiga ráðandi hlut í Nova innviðum. „Sem hluti af innviðavegferðinni kláruðum við í árslok samstarfs- og hluthafasamning Nova hf. og Sýnar hf. um framsal 4G og 5G til Sendafélagsins en Nova hf. á 55% hlut í því á móti Sýn,” segir Sylvía Kristín. EBITDA umfram síðustu spá Tekjur Nova jukust um 7,4% milli ára og námu 14,3 milljörðum króna í fyrra. EBITDA-hagnaður jókst um 3,1% og nam 4.256 milljónum króna. Í afkomutilkynningu Nova segir að EBITDA-hagnaðurinn sé umfram spábils afkomuspár sem gefin var upp í uppgjöri þriðja ársfjórðungs (4,0-4,2 milljarðar króna) sem birtist í lok oktkóber. Afkoman hafi hins vegar í takti við upphaflegar áætlarnir fyrir árið sem gerði ráð fyrir 4,0-4,4 milljarða króna EBITDA-hagnaði. Heildartekjur Nova á fjórða ársfjórðungi námu 4.033 milljónum króna og jukust um 15,3% milli ára. Hagnaður fjórðungsins nam 239 milljónum króna og lækkaði 2% milli ára. Eignir Nova námu 23,5 milljörðum króna í árslok 2025 og eigið fé var um 9,6 milljarðar króna. „Árið 2025 einkenndist af stöðugum og öflugum rekstri hjá Nova. Sjóðstreymi var sterkt og félagið hefur markvisst byggt upp traustan rekstrargrunn með því að halda í agaðan rekstur, skynsamlegar fjárfestingar og fókus á arðsemi sem setur Nova Klúbbinn í sterka stöðu fyrir áframhaldandi vöxt. Nova stendur á sterkum grunni og er í góðri stöðu til að skapa áframhaldandi virði fyrir hluthafa árið 2026 og til lengri tíma,” segir Sylvía Kristín. Hún segir horfur fyrir árið 2026 góðar og að félagið sé í sterkri stöðu til að fara í áframhaldandi vöxt ásamt því að styrkja reksturinn. Einfaldara skipulag Nova hafi verið kynnt í febrúar í kjölfar þess að framkvæmdastjóri Upplifunar hætti stöfum. Þá var í framhaldinu framkvæmdastjórum félagsins fækkað um einn og eitt svið lagt niður.