Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Jón Óttar nýr stjórnar­for­maður Nova

Read Full Article →

Jón Óttar Birgisson hefur tekið við sem stjórnarformaður Nova af Sigríði Olgeirsdóttur, sem gegnt hefur stjórnarformennsku undanfarin þrjú ár. Á aðalfundi Nova í gær voru allir fimm sitjandi stjórnarmenn endurkjörnir. Átta einstaklingar voru í framboði en auk sitjandi stjórnarmanna gáfu Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir, Haukur Skúlason og Erla Ósk Ásgeirsdóttir kost á sér til stjórnarsetu hjá félaginu. Sjá einnig Átta sækjast eftir fimm sætum í stjórn Nova Í stjórn félagsins voru endurkjörin þau: Hrund Rudolfsdóttir Jón Óttar Birgisson Jóhannes Þorsteinsson Sigríður Olgeirsdóttir Steinunn Hlíf Sigurðardóttir Jón Óttar, nýr stjórnarformaður, hefur setið í stjórn Nova frá árinu 2025. Hann er stofnandi og framkvæmdastjóri Stöpla Advisory ehf. frá 2015, sem sérhæfir sig í fyrirtækjaráðgjöf, aðstoð við fjármögnun og kaup og sölu fyrirtækja. Áður starfaði hann sem forstöðumaður fyrirtækjaráðgjafar hjá MP banka og framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar hjá Saga Capital. Þar áður gegndi Jón Óttar framkvæmdastjórastöðum hjá Strax í Bretlandi og Hong Kong. Jón Óttar situr eða hefur setið í fjölda stjórna, m.a. Lyfju, Men & Mice, Stefnis, MF1, Leigufélags aldraðra og Billboard. Jón Óttar er hagfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur auk þess lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Share this article