Jón Þorsteinn Oddleifsson hefur verið ráðinn forstjóri Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, Danól, Kjarnavara, Gæðabaksturs og fleiri félaga. Jón Þorsteinn hefur verið framkvæmdastjóri fjármála- og mannauðssviðs Ölgerðarinnar síðustu ár. Hann hefur víðtæka reynslu af fjármálamarkaði, sinnti viðskiptaþróun hjá Landsbréfum, var fjármálastjóri nýja Landsbankans og þar áður var hann forstöðumaður fjárstýringar Landsbankans. Jón Þorsteinn er stúdent frá Menntaskólanum að Laugarvatni og hagfræðingur með framhaldspróf í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands. Hann hefur einnig sinnt fjármálaráðgjöf til fyrirtækja og stofnana sem sjálfstæður ráðgjafi. „Það er gríðarlega spennandi tækifæri að taka við þessu starfi hjá þessu öfluga fyrirtæki. Síðustu ár hef ég í starfi mínu hjá Ölgerðinni komið æ meir að daglegum rekstri fyrirtækisins og samstæðunnar og ég þekki því vel innviði, starfsemi og menningu þessara fyrirtækja,“ segir Jón Þorsteinn.