- What: Andri Þór Guðmundsson leaves his role as CEO of Ölgerð, a subsidiary of Bera
- Impact: No direct effect on regular users
Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar sem fékk nafnið Bera á dögunum, hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri. Hann mun bjóða sig fram til stjórnar og gefa kost á sér til stjórnarformennsku móðurfélagsins Beru. „Jafnframt mun Andri Þór sinna sértækum verkefnum með áherslu á fyrirliggjandi tækifæri til vaxtar félagsins,“ segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Jón Þorsteinn Oddleifsson hefur verið ráðinn forstjóri Beru og Óli Rúnar Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar. Breytingarnar taka gildi á morgun, 1. mars. Jón Þorsteinn hefur síðustu ár sinnt starfi framkvæmdastjóra fjármála- og mannauðssviðs Beru og Óli Rúnar starfi framkvæmdastjóra markaðssviðs. Andri: Förum nú í fluggír Andri Þór segir að með tilkomu Ölgerðarinnar sem sérstaks dótturfélags innan Beru hafi hann sé tækifæri til breytinga og sóknar samstæðunnar. Hann segist hafa borið hugmyndina um að færa sig út hlutverki forstjóra yfir í stjórnarmann undir núverandi stjórnarformann, Boga Þór Siguroddsson. Sjá einnig Ölgerðin verður Bera „Úr þeim samtölum kom sú hugmynd að ég myndi jafnframt sækjast eftir því að taka við af honum sem stjórnarformaður og sinna stórum og sértækum verkefnum fyrir félagið sem snúa meðal annars að framtíðaruppbyggingu erlenda hluta starfseminnar og viðskiptaþróun með áherslu á ytri vöxt félagsins,“ segir Andri Þór. „Með þessum breytingum erum við að fara í sannkallaðan fluggír, efla félagið verulega og setja aukinn kraft á spennandi vegferð.“ Bogi segir ákvörðunina skynsamlega Haft er eftir Boga Þór, sem er stærsti einstaki hluthafi félagsins, að þetta sé skynsamlegt skref á ákveðnum tímamótum. Sjá einnig Selja í Ölgerðinni fyrir 3 milljarða til Boga og Lindu „Með þeim áherslubreytingum sem verða með tilkomu Ölgerðarinnar sem sérstaks dótturfélags Beru, fannst mér rétt að Andri Þór kæmi ekki aðeins í stjórn móðurfélagsins, heldur tæki við stjórnarformennsku félagsins og leiddi þá sókn sem fram undan er. Fyrirtækið er afar öflugt og verður enn öflugra með þeim áherslubreytingum, sóknarsinnaða hugarfari og hugmyndum sem liggja á borðinu,“ segir Bogi Þór . Áætluð velta Bera-samstæðunnar verður hátt í 60 milljarðar króna á næsta fjárhagsári og samanlagður starfsmannafjöldi um 600 manns. Á hluthafafundi félagsins þann 26. febrúar var samþykkt að breyta nafni Ölgerðarinnar í Beru og allur rekstur félagsins sem snerti framleiðslu og sölu á drykkjarvörum yrði framseldur til dótturfélags sem heitir nú Ölgerðin Egill Skallagrímsson. Miðar framsal þessarar rekstrareiningar til Ölgerðarinnar við 1. mars 2026. Eftir þessar breytingar verða rekstrarfélögin Ölgerðin, Kjarnavörur, Gæðabakstur, Collab Export, Iceland Spring, Danól og Mýrar fasteignafélag systurfélög og í eigu Beru sem jafnframt veitir félögunum stoðþjónustu.