Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nýr forstöðumaður markaðsmála hjá KPMG

  • What: Hildur Ottesen Hauksdóttir becomes head of marketing at KPMG
  • Impact: She will lead marketing and branding initiatives
Read Full Article →

Hildur Ottesen Hauksdóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðsmála hjá KPMG en þar mun hún leiða markaðs- og kynningarmál félagsins, taka þátt í stefnumótun og innleiðingu og styðja við þróun á þjónustu KPMG fyrir viðskiptavini. Í tilkynningu frá KPMG segir að hún muni einnig taka þátt í alþjóðlegu samstarfi markaðsleiðtoga innan KPMG. Hildur kemur til KPMG frá Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi þar sem hún stýrði markaðsstarfi síðustu fjögur ár. Þar áður starfaði hún í 14 ár hjá Arion banka. Hún hefur víðtæka reynslu af stjórnun markaðsmála, gagnadrifinni nálgun, stefnumótun, stafrænum lausnum, vefumsjón og -þróun, samskiptamálum og viðburðastjórnun. Hildur er með BS-gráðu í ferðamálafræði og BA-gráðu í spænsku og starfaði um árabil í ferðaþjónustu erlendis. „Við erum eintaklega ánægð að fá Hildi til liðs við okkur. Hún kemur inn með mikla reynslu og skýra sýn á hvernig við getum eflt markaðsstarfið enn frekar. Ég hlakka til að sjá hvernig hennar kraftar og áherslur munu styrkja vörumerki KPMG á næstu árum,“ segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri KPMG á Íslandi.

Share this article