Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sterkari samkeppnisaðili eftir að SAS sleit samstarfi

  • What: SAS ends partnership with Icelandair
  • Impact: Affects airline cooperation and market dynamics
Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 17.3.2026 | 13:10 Sterkari samkeppnisaðili eftir að SAS sleit samstarfi Ákvörðun SAS um að slíta samstarfi við Icelandair eftir 16 ár var einhliða. AFP Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sviptivindar í flugrekstri Sætanýtingin skiptir mestu máli Undirbúa beint flug frá Kína til Íslands Hundruð útlendinga hafa gert kröfu í þrotabú Play Náum ekki árangri ef við erum skattlögð upp í rjáfur Boðar til funda með starfsfólki á föstudag » Fleiri tengdar fréttir Ákvörðun SAS um að slíta samstarfi við Icelandair eftir 16 ár var einhliða að sögn Tómasar Ingasonar, framkvæmdastjóra tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Skandinavíska flugfélagið, sem hefur átt í samstarfi við Icelandair um svokölluð sammerkt flug frá árinu 2010, hefur ákveðið að segja upp samstarfssamningnum og tekur uppsögnin gildi í lok þessa mánaðar. Að ákveðnu leyti sér Icelandair sig sem enn sterkari samkeppnisaðila fyrir vikið. En hvað eru sammerkt flug og hvað þýðir þetta fyrir farþega? „Sammerkt flug eru í raun viðskiptalegur samningur á milli tveggja flugfélaga eða fleiri þar sem við t.d. getum sett okkar flugnúmer á flug sem eru í rauninni flogin af samstarfsaðilanum. Þannig getum við selt Icelandair flug alla leið til staða sem við fljúgum ekki á,“ segir Tómas. Hann segir fyrirkomulagið hafa marga kosti fyrir viðskiptavininn og auki valmöguleika hans til að fljúga og bóka með Icelandair, fá punkta með Icelandair og svo framvegis. Icelandair flýgur ekki til Hamborgar í dag en hefur getað selt flug þangað þar sem viðskiptavinurinn flýgur með Icelandair til Kaupmannahafnar en frá Kaupmannahöfn til Hamborgar með SAS að sögn Tómasar. „Þá er samkomulagið þannig að um borð í þessum flugum eru yfirleitt farþegar Icelandair flugsins boðnir velkomnir líka og reynt að gera upplifunina eins þægilega og mögulegt er.“ Tómas segir mikilvægt að það komi fram að í rauninni breytist ekki neitt fyrir þá sem voru búnir að kaupa flug. SAS muni náttúrulega uppfylla þau flug og fara að fullu eftir samningunum. „Það sem gerist núna er í rauninni bara tæknilegt atriði. Það er verið að færa á milli flugnúmera þannig að ef þú varst á Icelandair flugnúmerinu frá Kaupmannahöfn til Hamborgar þá verðurðu færður yfir á SAS flugnúmerið en allt annað verður nákvæmlega eins og verður fullkomlega uppfyllt og þú þarft ekki að hugsa neitt um þetta,“ segir Tómas og bætir því við að fólk fái nýjan flugmiða sendan í tölvupósti frá annaðhvort Icelandair eða þeim sem það hefur keypt miðann af. Frétt af mbl.is Telur ástæðu til að endurskoða íslenska módelið Hvers vegna kýs SAS að fara þessa leið? „SAS tekur þessa strategísku ákvörðun. Félagið sér hag sínum ekki lengur borgið best í þessu samstarfi. Við berum bara virðingu fyrir þeirri ákvörðun. Við hefðum alveg verið tilbúin að halda þessu samstarfi áfram en okkar verkefni núna er að finna hagstæðustu leiðirnar til þessara áfangastaða með öðrum samstarfsfélögum,“ en Icelandair er í samstarfi við 70 flugfélög, þar af 11 sammerkt samstarfsfélög. Tómas segir mikið hafa verið í gangi hjá SAS undanfarið en félagið hafi farið í gegnum greiðslustöðvun og fjárhagslega endurskipulagningu (Chapter 11) eftir covid. Þrjú stór og sterk bandalög flugfélaga eru á Atlantshafsmarkaðnum og eru þau með um 85% af öllu framboði á hafinu að sögn Tómasar Inga, sem segir þau stilla bæði framboð og verð á flugleggjum sameiginlega. Hann segir SAS hafa verið að vinna með Star Alliance-félögunum, sem eru Lufthansa og tengd félög Evrópumegin, en þegar Air France KLM hafi komið inn sem stór eigandi í SAS þá hafi félagið svissað yfir í sama bandalag og Air France KLM er í, Sky Team Alliance, enda vilji félögin vinna saman. Það geri að verkum að SAS sé að endurmeta alla samstarfsaðila sína. Icelandair kýs tvíhliða samninga Í dag flýgur SAS frá Kaupmannahöfn og Ósló til Íslands og eitthvað örstutt yfir sumarið frá Stokkhólmi en í framhaldinu mun félagið fljúga fyrst og fremst út frá Kaupmannahöfn að sögn Tómasar. „Á meðan félagið var í eigu danska, sænska og norska ríkisins þá þurfti það að skipta lengra fluginu á milli höfuðborga ríkjanna þriggja. Núna er búið að negla það niður að Kaupmannahöfn verður þessi flugvöllur þeirra fyrir lengri flug. Þá er komin upp áhugaverð staða fyrir okkur í bæði Stokkhólmi og Ósló því það er miklu hagkvæmara fyrir fólk frá Stokkhólmi, sem er tíu milljóna markaður, og Ósló, sem er þriggja, jafnvel fimm milljóna markaður, að fljúga í gegnum Ísland ef það þarf hvort eð er að stoppa á leiðinni til Norður-Ameríku. Út frá því sjáum við okkur sem enn sterkari samkeppnisaðila.“ Icelandair hefur séð hag sínum betur borgið utan flugbandalaga og hefur félagið frekar viljað gera tvíhliða samninga að sögn Tómasar. Samstarfi Icelandair og SAS er ekki að fullu að ljúka. Það sem kallast interline og er næsta stig undir sammerktum flugum verður áfram í boði á ákveðnum mörkuðum. „Þá einfaldlega seljum við SAS-flugið í tengingu við Icelandair-flugið. Þannig að við seljum það þá ekki sem sammerkt flug heldur bara SAS-flugið. Við erum enn þá að koma okkur saman um það við SAS á hvaða mörkuðum það verður mögulegt. Icelandair er með 70 samstarfsaðila sem eru enn finnanlegir á icelandair.com og icelandair.is þannig að það verður áfram úr nógu að velja.“ Tengdar fréttir Sviptivindar í flugrekstri Sætanýtingin skiptir mestu máli Undirbúa beint flug frá Kína til Íslands Hundruð útlendinga hafa gert kröfu í þrotabú Play Náum ekki árangri ef við erum skattlögð upp í rjáfur Boðar til funda með starfsfólki á föstudag » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Ísland og Balkanlöndin á sama farrými inn í ESB Sigurður Már Jónsson Bókadómur: Dátadraumurinn og Fröken Dúlla Fleira áhugavert Fyrri umræðu um ESB-tillögu lokið Fannst nakin og örend í snjóskafli Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Páll kom að magnaðri lækningu Rosie Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Nordea segir upp 1.500 manns Breytt stýrivaxtaspá vegna stríðs Spá 0,25 prósentustiga vaxtahækkun Vara við aukinni skattheimtu á orkumannvirki Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Sameinast undir vörumerki Apótekarans Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Sameinast undir vörumerki Apótekarans Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Berjaya Hotels töpuðu milljarði Nær helmingur Tesla-bílanna fellur á fyrstu skoðun 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu 581 milljón króna hagnaður hjá Póstinum Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Sameinast undir vörumerki Apótekarans Telur ástæðu til að endurskoða íslenska módelið Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Berjaya Hotels töpuðu milljarði Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Pistlar » Sigurður Már Jónsson Ísland og Balkanlöndin á sama farrými inn í ESB Sigurður Már Jónsson Bókadómur: Dátadraumurinn og Fröken Dúlla Fleira áhugavert Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Páll kom að magnaðri lækningu Rosie Fyrri umræðu um ESB-tillögu lokið Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Nordea segir upp 1.500 manns Breytt stýrivaxtaspá vegna stríðs Spá 0,25 prósentustiga vaxtahækkun Vara við aukinni skattheimtu á orkumannvirki Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Sameinast undir vörumerki Apótekarans Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Íris ráðin viðskiptastjóri hjá SI Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Sameinast undir vörumerki Apótekarans Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Berjaya Hotels töpuðu milljarði Nær helmingur Tesla-bílanna fellur á fyrstu skoðun 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu 581 milljón króna hagnaður hjá Póstinum Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Sameinast undir vörumerki Apótekarans Telur ástæðu til að endurskoða íslenska módelið Sjónvarpsfréttirnar ekki með: „Það er nóg eftir“ Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Guðmundur Fertram kaupir sig inn í hótelrekstur Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Berjaya Hotels töpuðu milljarði Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Hulda tekur við nýrri deild Eimskips

Share this article