- What: Leadership changes at Reita
- Impact: Board composition changes
Tilnefningarnefnd Reita hefur tilkynnt um að Davíð Þorláksson, sem nefndin tilnefndi fyrr í vikunni, muni ekki geta tekið sæti í stjórn fasteignafélagsins „vegna persónulegra aðstæðna“. Nefndin hefur því ákveðið að leggja til að Pálmar Óli Magnússon, fyrrverandi forstjóri Daga og Samskipa, verði kjörinn í stjórn Reita á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 25. mars næstkomandi. Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um þá ákvað Guðmundur Ingi Jónsson, stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi Reita, að draga framboð sitt í stjórn fasteignafélagsins til baka vegna óánægju með hvernig staðið var að ákvörðun um hver skuli taka við stjórnarformennsku. Sjá einnig Stærsti einkafjárfestirinn hættir í stjórn Reita Á mánudaginn lagði tilnefningarnefnd Reita til að Davíð Þorláksson yrði kjörinn í stjórnina í stað Guðmundar. Davíð er framkvæmdastjóri Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf. sem munu 1. júlí næstkomandi taka við rekstri almenningssamgangna á svæðinu, strætisvagna og Borgarlínunnar, þegar hún hefur akstur 2031. Sem fyrr segir hefur nefndin nú lagt til að Pálmar Óli Magnússon komi nýr inn í stjórnina. Hann var forstjóri hjá Dögum á árunum 2019-2025, forstjóri Samskipa á árunum 2014-2019, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs hjá Landsvirkjun á árunum 2011-2014 og framkvæmdastjóri hjá Samskip 1998-2011. Hann situr í dag í stjórn Ísorku. „Víðtæk reynsla Pálmars af rekstri, þróun, umbótum og af innleiðingu stórra fjárfestingaverkefna er talin til þess fallin að styrkja stjórn Reita til framtíðar,“ segir í viðauka II við skýrslu tilnefningarnefndar. Nefndin leggur því til að eftirfarandi einstaklingar verði körnir í stjórn Reita: Anna Kristín Pálsdóttir, fyrst kjörin árið 2024 Elín Árnadóttir, tók sæti árið 2023 - sat áður í stjórn frá 2010-2019 Kristinn Albertsson, tók sæti í stjórn árið 2017 Árni Sigurjónsson Pálmar Óli Magnússon Formaður tilnefningarnefndar upplýsti á dögunum stjórnarmönnum um að stórir hluthafar hafi komið á framfæri þeim skilaboðum að þeir telji að Árni Sigurjónsson, forstöðumaður hjá JBT Marel og fyrrverandi formaður Samtaka iðnaðarins, eigi að taka við stjórnarformennsku. Í tilnefningarnefnd Reita sitja Auður Ósk Þórisdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir og Hilmar Garðar Hjaltason. Auður er formaður nefndarinnar.