- What: Overview of Lean Six Sigma methodology
- Impact: Widely used for business process improvement
Lean Six Sigma er einhver áhrifaríkasta stjórnunaraðferð sem þekkist og er beitt af fyrirtækjum og stofnunum víðast hvar erlendis við að bæta árangur með því að auka skilvirkni og samhæfingu í starfseminni. Lean Six Sigma er afar áhrifamikil umbótaaðferð sem sett er saman úr Lean annars vegar og Six Sigma hins vegar. Lean eða straumlínustjórnun þróaðist hjá Toyota í kringum seinni heimstyrjöldina og breiddist hratt út eftir að Toyota varð ráðandi á markaðinum með straumlínustjórnun í forgrunni í stjórnun. Verklagið hjá Toyota samanstóð af mikilli skilvirkni, framúrskarandi gæðum og lægri kostnaði en hjá samkeppninni. Bakgrunnurinn Six Sigma var upphaflega beitt af Motoralla fjarskiptafyrirtækinu en náði mikilli útbreiðslu og vinsældum árið 1995 þegar Jack Welch forstjóri GE notaði Six Sigma sem þungamiðju í stjórnun GE á sínum tíma. GE jók einmitt veltuna fimmfalt á tuttugu ára tímabili. Lækkun kostnaðar vegna stórbættra gæða og samhæfingar í verklaginu lækkaði kostnað um 12 milljarða dollara á fimm árum eftir að Six Sigma var tekið upp. Lean Six Sigma er iðulega kölluð gæðastjórnun á sterum til marks um hversu áhrifarík aðferðin er fyrir starfsemina. Fremstu fyrirtæki og stofnanir í heiminum beita LSS en helmingur af Fortune 500 fyrirtækjum (82% af topp 100) nota LSS til að viðhalda samkeppnisyfirburðum sínum. Lean Six Sigma er stjórnunaraðferð til að vinna að framþróun í starfseminni. Aðferðin byggir á því að greina upplýsingar og gögn á skipulegan hátt til að finna vandamál, leysa þau og gera starfsemina skilvirkari. Aðferðin er árangursmiðuð og hentar vel í daglegum rekstri við að vera sífellt að bæta starfsemina í stað þess að vera ávallt að bregðast við vandamálum eins og oft háttar. Ávinningur fyrir íslenskt atvinnulíf Það er brýnt að koma þessum aðferðum og áherslum að í íslensku atvinnulífi. Það ætti að vera keppikefli hvers fyrirtækis að starfa að bættri skilvirkni og vinna að því að útrýma sóun úr rekstrinum. Lean Six Sigma á erindi og hefur sannað sig í flestum atvinnugreinum eins og framleiðslu, heilbrigðisgeiranum, fjarskiptum, samgöngunum og kennslu svo eitthvað sé nefnt. Þá vinna fjölmargar ríkisstofnanir og sveitafélög erlendis samkvæmt Lean Six Sigma til að vinna á sóun, efla skilvirkni og bæta þjónustu. Ljóst er að með vottun á hópi starfsmanna í Lean Six Sigma mun samkeppnishæfni viðkomandi fyrirtækis eflast til muna. Með vottun þá byggist upp sameiginlegur skilningur, sama tungumál, um gæði og umbætur. Í síbreytilegur umhverfi í dag þá skiptir miklu máli að hafa yfir að ráða umbóta- og lærdómsmenningu sem tekur á vandamálum með skilvirkum hætti. Þá er starfsemin líklegri til að geta unnið að framþróun í verkleginu með vottunum með því að vinna að því að útrýma sóun og óþarfa vinnu sem er viðvarandi víða í starfsumhverfinu í dag. Það er hægt að bjóða upp á Lean Six Sigma beltin sem mikilvægan þátt í starfþróun fyrir starfsmenn yfir tíma. Það er til dæmis þekkt erlendis að ákveðinn launaskali tengist vottun á hverju belti, sem er lýsandi fyrir hversu áhrifarík og verðmæt aðferðin er fyrir starfsemina og starfsmennina sjálfa sem bæta þekkingu sína og stækka verkfærakistuna í verkefnavinnu, greiningu og umbótum. Kynning á Lean Six Sigma Lean Six Sigma námskeið hafa verið í boði fyrirtækja og háskóla í Evrópu og í Bandaríkjunum um árabil og nú loksins á Íslandi einnig. ANSA ehf. og NTV Promennt bjóða nú upp á vefnámskeið og vottun í hvíta, gula og græna beltinu í Lean Six Sigma undir yfirskriftinni: Sjáðu tækifærin í umbótum . Markmiðið með að bjóða upp á námskeið og vottun á íslensku og í íslensku samhengi. Starfsmenn og stjórnendur geta tekið námskeiðin með vinnu á vefnum þegar tími gefst. Kynning á Lean Six Sigma verður haldin hjá Stjórnvísi á Teams á föstudaginn 20. mars frá kl. 9.00 til 10.00 með yfirskriftinni Hver er ávinningurinn með Lean Six Sigma vottun fyrir þig og starfsemina? Við hvetjum sem flesta til að skrá sig á kynninguna á föstudaginn til að fá innsýn inn á aðferðina og hvað fellst í vottun á hverju belti. Höfundur er stjórnunarráðgjafi Ansa ehf.