Lagt er til að stök ferð fyrir minnstu bílana yfir nýja Ölfusárbrú verði 495 krónur en áætlað er að um 64% vegfarenda nýti sér enn gömlu brúna eftir að sú nýja verður opnuð. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu Vegagerðarinnar um nýja Ölfusárbrú. Þar er lagt til að magnafsláttur verði veittur fyrir bíla undir 3,5 tonnum, allt að 50% afsláttur fyrir 100 ferðir. Gjald fyrir þyngri ökutæki yrði á bilinu 800 til 1.700 krónur. Stefnt er að því að brúin verði opnuð á næsta ári. Eldri brúin verður enn í notkun með þungatakmörkunum. Umferð um eldri Ölfusárbrú var að meðaltali 14.500 bílar á dag árið 2023, 3,5% meiri en árið á undan. Vegagerðin býst við því að um nýja brú fari mestmegnis gegnumstreymisumferð, sem sagt vegfarendur sem stöðva stutt á Selfossi eða alls ekki. Án veggjalds áætlar Vegagerðin að tæplega 60% vegfarenda fari áfram um eldri Ölfusárbrú í stað þeirrar nýju. Að teknu tilliti til veggjalds er gert ráð fyrir að það hlutfall hækki um 4% og að 36% vegfarenda nýti nýja Ölfusárbrú. Áætlað er að með gjaldtöku verði umferð um nýju brúna um 6.500 bílar á dag á næsta ári og um 9.000 bílar árið 2040. Umferð um eldri brú verði áfram töluverð, á bilinu 10.500 til 11.000 bílar á dag árið 2028.